Nýr Jeep Compass frumsýndur Sæunn Gísladóttir skrifar 25. ágúst 2017 13:33 Íslensk-Bandaríska frumsýnir nýjasta fjölskyldumeðlim Jeep, Jeep Compass laugardaginn 26. ágúst á milli kl. 12-17 að Þverholti 6 Mosfellsbæ. Mynd/Aðsend
Íslensk-Bandaríska frumsýnir nýjasta fjölskyldumeðlim Jeep, Jeep Compass laugardaginn 26. ágúst á milli kl. 12-17 að Þverholti 6 Mosfellsbæ. Jeep Compass er ný hönnun frá grunni, sem byggir á hinni þjóðsagnakenndu hefð sem Jeep hefur haft undanfarin 75 ár í framleiðslu fjórhjóladrifinna jeppa, ásamt því að vera leiðandi framleiðandi fjórhjóladrifinna bifreiða. Einstök hönnun, öflugt háþróað fjórhjóladrif og aflmikil vél, veitir Jeep Compass ótvírætt forskot í sínum stærðarflokki. Þrátt fyrir nýtt útlit, má strax sjá auðþekkjanleg einnkenni Jeep í honum. Hægt er að velja um 4 drifstillingar á fjórhjóladrifinu, allt eftir því hvernig akstursaðstæður eru á vegum eða vegleysum, sem tryggir bíl og ökumanni hámarksgrip og akstursfærni. Compass verður fyrst um sinn fáanlegur með 2.0 lítra 170 hestafla díselvél, með 9 þrepa sjálfskiptingu, en einnig verður hægt að velja um 2.0 lítra 140 hestafla díselvél, sem og 1.4 lítra 170 hestafla bensínvél. Jeep Compass er mjög vel útbúinn og ekkert er til sparað til að tryggja sem mest öryggi farþega og ökumanns. Má hérna nefna 6 loftpúða og árekstaravara sem staðalbúnað. Jeep Compass Limited kostar frá 5.890.000 kr. Við frumsýningu á Jeep Compass er í boði Limited í sérstakri “Opening Edition” og kostar hann frá 6.260.000 kr. Þá mun Íslensk-Bandaríska einnig frumsýna nýja útgáfu af Jeep Grand Cherokee, Trailhawk. Trailhawk er torfæruútgáfa sem kemur með læsingu, grófari dekkjum, hlífðarplötum undir bíl o.m.fl. Jeep Grand Cherokee Trailhawk kostar frá kr. 10.350.000 og er eins og aðrir Grand Cherokee með 3.0 lítra 250 hestafla díselvél og 8 gíra sjálfskiptingu. Boðið verður upp á reynsuakstur á nýja Jeep Compass, auk þess verða aðrir jeppar frá Jeep til prufu. Kaffiþjónar frá Lavazza munu töfra fram ítalskt eðalkaffi, auk þess sem krakkarnir fá Appelsín, Lion og Mentos.
Mest lesið Segjast hafa verið neydd til að krjúpa tímunum saman og lýsa yfir ást sinni á Ísrael Innlent Lagði við Hverfisgötu eftir allt saman Innlent Boða aftur til kvennaverkfalls fimmtíu árum eftir það fyrsta Innlent „Þykjustuleikur“ að Ísland fái annan díl Innlent Rannsaka hvort bílstjórinn hafi dottað Innlent Laxnessleysið skandall eða stormur í vatnsglasi? Innlent Vegagerðin sannfærð um kosti brúar umfram göng Innlent „Ég held að það sé sterk friðarvon núna“ Innlent Gummi reiður: „Kominn tími til að þeir sem ráða opni augun" Innlent Ekki sjálfsvörn að berja með steypuklumpi í höfuðið Innlent