Trénu stungið niður víða um heim Stefán Árni Pálsson skrifar 27. september 2017 14:45 Sigurður Sigurjónsson leikur eitt af aðalhlutverkunum í kvikmyndinni Undir trénu.
Eftir að Undir trénu var frumsýnd í Norður-Ameríku á Toronto kvikmyndahátíðinni í byrjun september hefur myndin selst vel víða um heim. Áður hafði kvikmyndin verið seld til Frakklands og Norðurlandanna auk þess sem hið virta dreifingarfyrirtæki Magnolia tryggði sér réttinn í Norður-Ameríku. Nú hafa Grikkland, Ástralía, Nýja-Sjáland, Holland, Belgía, Lúxemburg, Kína, Eistland og Litháen bæst við. Viðræður standa enn yfir við fjölda landsvæða og ljóst má vera að fleiri sölusamningar munu bætast við á komandi vikum. „Það er greinilegt að það eru ekki bara íslenskir áhorfendur sem flykkjast í bíó, því myndin vekur mikla athygli utan landsteinanna og algjörlega frábær viðbrögð sem við höfum verið að fá, sérstaklega í Norður-Ameríku. Hún virðist hitta mjög vel þar,” segir Hafsteinn Gunnar Sigurðsson leikstjóri sem er nýkominn frá Austin, Texas þar sem myndin var sýnd á kvikmyndahátíðinni Fantastic Fest um helgina. Framundan er ferðalag á tugi kvikmyndahátíða út um allan heim og hefur myndin verið tilnefnd til fjölda virtra verðlauna, t.a.m. í Zürich, Sviss, Hamptons, Bandaríkjunum og Valladolid á Spáni. Þessar hátíðir fara allar fram núna í október. Undir trénu er framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna og hafa um 30 þúsund manns séð hana í íslenskum kvikmyndahúsum síðan hún var frumsýnd í byrjun mánaðar.
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Fleiri fréttir Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Sjá meira