Halldór Kristján pantaði súkkulaðibílinn frá Tékklandi en hann kom á götuna í Reykjavík í júní síðastliðnum. Bíllinn, sem er sérhannaður að ósk Halldórs, hefur vakið mikla athygli og hefur einn stærsti ferðavefur heims, Lonely Planet, fjallað um hann.
Halldór telur að þetta sé eini bíll sinnar tegundar í heiminum. Núna er bíllinn staðsettur við Fjörð í Hafnarfirði þar sem Halldór heldur námskeið um leið og hann heldur upp á 20 ára afmælið.

Þótt hann sé lærður konditor starfar hann ekki í bakaríi heldur á Fasteignasölu Reykjavíkur. Hins vegar hefur hann haldið námskeið í kransaköku-, konfekt- og páskaeggjagerð.
„Ég er í löggildingarnámi í fasteignasölu en það starf á vel við mig meðfram námskeiðunum. Í fasteignasölu kynnist maður fólki á persónulegan hátt og þetta er mjög gefandi og skemmtilegt starf. Ég var bakari í eitt ár eftir að ég kom úr námi en mér fannst starfið ekki henta mér. Mér bauðst að opna kransakökuhús í Smáralindinni stuttu eftir opnun en líf mitt þróaðist á annan veg. Móðir mín segir að það sem maður læri verði ekki frá manni tekið. Mitt sex ára nám mitt nýtist mér til námskeiðshalds og það finnst mér meiri háttar,“ segir Halldór.
Hann gekk lengi með þá hugmynd að vera með súkkulaðivagn á hjólum.
„Ég lét þennan draum rætast, ekki síst vegna þess að mig langaði til að fá erlenda ferðamenn á námskeið hjá mér. Það hefur gengið eftir þótt Íslendingar séu fjölmennari. Það hafa samt komið um 200 útlendingar á námskeið hjá mér. Matarbílar hafa verið að ryðja sér til rúms á undanförnum árum, af hverju ekki súkkulaðibíll? spyr Halldór. „Ég lét sérhanna fyrir mig konfektmót með merki Íslands en ég vildi skapa mér ákveðna sérstöðu,“ segir Halldór. Súkkulaðibíllinn fer fljótlega á Skólavörðuholtið þar sem hann verður í vetur.

„Ég hannaði þetta fyrir leikmenn svo allir geta gert þetta,“ segir Halldór sem hvetur konur til að fara í konditornám.
„Það þarf að fjölga í þessari grein,“ segir Halldór sem á von á að mikið verði að gera í súkkulaðinu fyrir jólin.
Sjá má meðfylgjandi myndband af því hvernig hann temprar súkkulaðið og fleira á Facebook-síðunni Konfektnámskeið Halldórs.