Pavlova og súkkulaðitrufflur frá félögunum í Brikk Starri Freyr Jónsson skrifar 23. september 2017 11:30 Tveir af eigendum Brikk – brauð og eldhús. Davíð Magnússon (t.v.) er bakari og Oddur Smári Rafnsson er kokkur. Á myndina vantar Einar Benediktsson. MYNDIR/VILHELM
Strákarnir á bak við veitingastaðinn Brikk – brauð og eldhús í Hafnarfirði eru miklir matmenn sem láta sér ekki næga að framreiða ljúffengan mat á veitingastaðnum sínum sem þeir opnuðu saman snemma í sumar. Félagarnir heita Davíð Magnússon, sem er bakari, Oddur Smári Rafnsson, sem er kokkur og Einar Benediktsson sem er titlaður fjármálagúrú í samstarfi þeirra. „Ég er algjör „sökker“ fyrir svínakjöti,“ segir Oddur. „Heima fyrir leik ég mér mikið með alls konar útfærslur af t.d. svínasnitseli en sá réttur er í miklu uppáhaldi hjá mér.“ Davíð og Einar segjast fara klassískari leiðir í eldhúsinu heima fyrir. „Við erum meira fyrir gott nautakjöt og bearnaise-sósu, sem er eldað saman á fullkominn hátt.“ Þeir eru þó sammála um að þegar þeir vilji gera sérstaklega vel við sig heima verði grillaður humar oft fyrir valinu. „Það er alltaf klassískur réttur og ekki er verra að hafa einn kaldan með.“ Úrvals hráefni Þeir segjast einungis vinna með úrvals hráefni á Brikk og stytti sér aldrei leið í eldamennskunni. „Við notum til dæmis aðeins íslenskt smjör í smjördeigið okkar og lögum allar sultur, krem og ganache á staðnum. Engir innfluttir kleinuhringir eru í boði hér á bæ.“ Veitingastaðurinn Brikk var opnaður um miðjan júní og hafa viðtökur verið framar vonum þeirra. „Við bjóðum m.a. upp á margar tegundir af snúðum, bæði úr smjör- og gerdeigi, súrdeigsbrauð og einnig súrdeigsbrauðsneiðar með salati. Svo bjóðum við einnig upp á samlokur og súpu alla daga sem eru lagaðar eftir pöntunum en matseðillinn hjá okkur breytist reglulega.“ Nýjungar fram undan Félagarnir eru alltaf að prófa sig áfram með ýmsar nýjungar. „Núna erum við að vinna í ýmsum nýjum vörum fyrir veturinn, eins og paté, jólasnúðum og fullt af smákökum, smørrebrød og heitt súkkulaði í kuldanum. Einnig stefnum við á að bjóða upp á súrdeigspitsudeig sem fólk getur kippt með sér heim.“ Pavlovurnar eru toppaðar með þeyttum rjóma, súkkulaði og berjum. Súkkulaðitrufflurnar eru þaktar kakódufti.Vísir/Eyþór Hér gefa þeir lesendum Fréttablaðsins tvær einfaldar og ljúffengar uppskriftir. „Við völdum þessar uppskriftir af því að þær eru auðveldar, gómsætar og algjörlega nauðsynlegar á veisluborðið ætli maður að fara alla leið.“ Pavlova 280 g eggjahvítur 500 g sykur 1 ½ tsk. edik ½ tsk. sítrónusafi ½ tsk. salt Eggjahvíturnar eru þeyttar og sykrinum bætt út í í nokkrum skömmtum. Þeyttar þar til hvíturnar hafa myndað mjúka áferð og leka ekki af þeytaranum. Ediki, sítrónusafa og salti er blandað varlega í með sleikju. Sett í sprautupoka og sprautað í þá stærð sem hver og einn vill. Bakað við 100 gráður í 45 mín. eða þar til pavlovan er stökk að utan en mjúk að innan ( fer eftir ofnum). Toppað með til dæmis þeyttum rjóma, berjum og súkkulaði. Súkkulaðitrufflur 560 g dökkt súkkulaði 500 g rjómi 100 g mjúkt smjör 90 g hunang Hitið rjóma og hunang að suðu. Hellið honum næst yfir súkkulaðið og blandað saman. Smjörinu er bætt út í í nokkrum skömmtum. Kælið yfir nótt og sprautið daginn eftir í litlar kúlur og kælið. Hjúpað með dökku súkkulaði og setjið kakóduft á kúlurnar áður en súkkulaðið storknar. Geymist í kæli.
Eftirréttir Trufflur Uppskriftir Mest lesið Walking Dead-leikkona látin Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Lífið Húsgögn úr afgöngum og fiskar í gosbrunninum Lífið Kveður föður sinn með tilvitnun í Hunter S. Thompson Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið