Fasteignaverð tekur kipp Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. september 2017 09:02 Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1 prósent í ágúst. Vísir/Anton Brink
Þjóðskrá birti í gær tölur um fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu í ágúst og voru hækkanir meiri en þær hafa verið undanfarna mánuði. Frá þessu er greint í Hagsjá Landsbankans sem kom út í morgun en þar kemur fram að verð fasteigna á höfuðborgarsvæðinu hafi hækkað um eitt prósent í ágúst. Þar af hækkaði verð á sérbýli um 2,4 prósent og verð á fjölbýli um 0,5 prósent og eru hækkanir frá fyrra ári enn mjög miklar. Tölur Þjóðskrár sýna að verð á fjölbýli hefur hækkað um 18,4 prósent síðustu 12 mánuði og verð á sérbýli um 20,8 prósent. Heildarhækkunin nemur 19,1 prósent sem er svipað og í liðnum mánuði. Lækkun fasteignaverðs hefur því stöðvast ef miðað er við þetta, að minnsta kosti í bili. „Verð á fjölbýli hækkaði í síðasta mánuði eftir litlar breytingar síðustu tvo mánuði. Það virðist því sem meiri ró sé yfir þeim markaði en verið hefur, en engu að síður er hækkunin um 1% nú töluverð. Verð á sérbýli hækkar enn í svipuðum takti og verið hefur, eða um u.þ.b. 20% á ári. Vangaveltur um mögulega kólnun á markaðnum fengu því smá mótbyr með ágústtölunum, þar sem hækkanirnar nú eru enn miklar í sögulegu samhengi. Raunverð fasteigna hefur þannig hækkað um u.þ.b. 23% á einu ári, frá ágúst 2016 til ágúst 2017,“ segir í Hagsjá Landsbankans sem lesa má í heild hér.
Húsnæðismál Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn talinn vera að kólna Það vekur athygli að fasteignaverð á fjölbýli hækkaði aðeins um 0,32 prósent milli mánaða en ekki hefur sést eins lítil hækkun frá því í mars 2016. 31. ágúst 2017 07:00 Hægir á hækkun fasteignaverðs Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,3 prósent í júlí. 18. ágúst 2017 12:52 Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira
Húsnæðismarkaðurinn talinn vera að kólna Það vekur athygli að fasteignaverð á fjölbýli hækkaði aðeins um 0,32 prósent milli mánaða en ekki hefur sést eins lítil hækkun frá því í mars 2016. 31. ágúst 2017 07:00
Hægir á hækkun fasteignaverðs Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,3 prósent í júlí. 18. ágúst 2017 12:52