Continental selur líka aðra Lincoln bíla 4. október 2017 09:00 Lincoln Continental er ákaflega laglegur bíll.
Lincoln, lúxusbílaarmur Ford hefur ekki gengið sem best í sölu bíla sinna á þessum áratug og hefur verið með að meðaltali um 0,6% markaðshlutdeild á bandarískum bílamarkaði þennan áratug. Lincoln má muna fífil sinn fegurri, en fyrirtækið var með 1,5% hlutdeild árið 1991 og var alltaf vel yfir 1% markinu 15 síðustu ár síðustu aldar. Nú er þó ljós í myrkrinu því nýr Lincoln Continental selst mjög vel enda þar mjög fagur bíll á ferð. Margir hafa heillast af útliti hans og heimsótt sýningarsali Lincoln í kauphugleiðingum en komist að því að sú útfærsla hans sem freistar er of dýr og fyrir vikið hafa margir þeirra keypt ódýrari gerðir Lincoln bíla. Þannig hefur Continental dregið til sín viðskiptavini sem í upphafi hafi ekki ætlað að kaupa minni gerðir Lincoln bíla en endað á því að kaupa einhvern þeirra. Grunnútgáfa Lincoln Continental kostar 45.925 dollara en dýrasta og best búna gerð hans kostar heila 82.000 dollara. Margir þeir sem ætluðu að fjárfesta í Continental hafa endað á að kaupa MKZ fólksbílinn eða MKC jeppann. Sala Lincoln jókst um 3,2% á fyrstu 8 mánuðum ársins á tíma þar sem lúxusbílamarkaðurinn hefur staðið í stað á milli ára. Lincoln Continental selst líka mjög vel í Kína og hefur það hjálpað Lincoln mikið. Hjá sumum af sölustöðum Lincoln í Bandaríkjunum eru bílastæðin full af notuðum BMW 7-línu bílum sem kaupendur Lincoln Continental bíla hafa sett uppí kaupin.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent