Sögur um þöggun og brengluð viðhorf Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 25. nóvember 2017 07:00 Stjórnmálakonur hittust í gær á Bryggjunni brugghúsi til að gleðjast í kjölfar átaksins Í skugga valdsins. vísir/stefán
Upplifun kvenna af kynferðisáreitni í daglegu lífi á vettvangi stjórnmála einkennist af sjálfsásökun, niðurlægingu og skömm. Fjölmargar íslenskar stjórnmálakonur sögðu í gær frá reynslu sinni af ofbeldi, áreitni og niðrandi framkomu samferðafólks í stjórnmálum og hvernig þær hafa tekist á við þá reynslu. #höfumháttÁtti að bæta fyrir lágu launin sem hann fékkVið vorum tvö ein eftir á kosningaskrifstofunni eitt kvöldið þegar hann sagði eitthvað á þá leið að hann væri nú ekki á það góðum launum að ég ætti nú verandi svona ung og sæt að bjóðast til að bæta honum það upp, hann væri nú líka að vera svo duglegur að reyna að koma mér inn á þing. Ég klagaði þessa framkomu bæði til kosningastjóra flokksins á landsvísu og til karlanna í fyrstu sætunum – ég var vinsamlegast beðin um að vera ekkert að gera mál úr þessu þegar væri svona stutt til kosninga.Átti að mála sig meiraÉg fékk ýmsar athugasemdir varðandi útlit mitt, hvernig ég var klædd, hvernig ég beitti röddinni og hversu hátt ég sló í bjölluna. Í eitt skiptið var ég beðin að vera kvenlegri og slá léttar í bjölluna. Í annað skipti fékk ég ráð um að mála mig meira „því þú ert myndarleg kona en það sést ekki nægilega vel á sjónvarpinu“.Borgarfulltrúi vildi álykta um klámráðstefnuþegar ég kom heim biðu mín grófar nauðgunarhótanir sem lögreglan m.a. rak í tölvu starfsmanna á líkamsræktarstöð, engin leið var að finna út hver bæri ábyrgð á þessu. Næstu mánuði var ég extra vör um mig enda bjó ég á jarðhæð og var oft ein heima með lítið barn. Ég lét eins og þetta hefði ekki haft áhrif á mig út á við en mér stóð ekki á sama og hugsaði mig tvisvar um áður en ég fór í umdeild mál. Ég hélt samt áfram að berjast í sömu málum og lét þetta ekki stoppa mig en ég vissi nú að fórnarkostnaðurinn gæti verið öryggi mitt.Þarf að fá að ríða þérÉg þarf að fara upp á hótelherbergi; fer í lyftuna – stjórnmálamaðurinn hoppar inn í lyftuna. Við spjöllum, hann lætur mig vita að honum þykir ég sexý, króar mig af í lyftunni, strýkur upp kjólinn, endar á brjóstinu og ég frosin þegar hann rekur upp í mig tunguna. Lyftan stoppar og hann biður mig að koma með inn á hæðina því hann þurfi bara að fá að ríða mér – ég sé búin að stríða honum nóg og lengi.Á hnén fyrir formannÞingmaður á karlakvöldi útnefndi þá samstarfskonu á þingi sem hann vildi helst sofa hjá. Þegar hann var búinn að því bætti hann í og sagði helsta kost lágvaxinnar samflokkskonu sinnar vera þá að hún þyrfti ekki einu sinni að fara á hnén fyrir formanninn.Saga af landsfundiÉg gekk um og heilsaði fólki eins og hefðbundið er þegar einn fávitinn sem ég þekki eiginlega ekkert kom upp að mér og strauk á mér kúluna og sagðist ekki vita neitt meira æsandi heldur en óléttar konur.Setti upp fýlusvipEftir matinn fékk fólk sér drykk og bæjarstjóri í nálægu sveitarfélagi sem ég þekki ekki neitt stakk upp á að við færum saman upp á herbergi. Þegar ég neitaði setti hann upp fýlusvip og sagðist aldrei hafa fengið neitun áður. Ég yrði bara að sofa hjá honum. Margir karlar voru við borðið en því miður engin kona sem var nógu nálægt til að heyra. Enginn sagði neitt. Ég flýtti mér upp á herbergi þegar á hótelið var komið, skömmu síðar var bankað á hurðina. Ég opnaði ekki og ekki í hin tvö skiptin sem bankað var. Ég hins vegar svaf ekkert og var ekki í neinu formi fyrir pólitískar umræður daginn eftir þar sem orkan fór í að forðast hann og svo skammaðist ég mín, skil það ekki núna.Leið eins og 12 ára niðurlægðri stelpuMér fannst þetta mjög valdeflandi að standa þarna í pontu og miðla minni reynslu og var ferlega ánægð með mig. Í hádegishléinu var fólk mikið að spjalla saman eins og gaman er að gera á svona mannamótum. Svo rekst ég á einn sem ég þekki aðeins, þingmaður flokksins, og ég fer að heilsa honum. Þá klípur hann í nefið á mér og segir „hvað segir þú stelpa“! Og skyndilega fór ég úr því að vera valdefld 36 ára kona í að vera 12 ára niðurlægð stelpa.Klipin af fávitaÞegar ég var í framboði til Alþingis 2009 var ég klipin fast í rassinn af einhverjum fávita sem mætti á opið hús. Ég upplifði það eins og honum fyndist hann mega þetta þar sem ég væri í (fram)boði og ætti að þóknast áhugasömum kjósendum.Brotnaði niður heima eftir að hafa hlegiðÞingmaðurinn faðmar mig skyndilega alveg innilega þannig að við dettum ofan í sófa, hann liggjandi ofan á mér með allan sinn þunga. Svo kyssir hann mig á hálsinn og kinnina. Ég hló þetta af mér en fór heim og brotnaði niður og gat lengi vel ekki horfst í augu við hann eða umgengist hann í starfi flokksins. Hann er (enn) dáður og elskaður þingmaður.Nauðgun í flokkspartýiKarl sem gegndi trúnaðarstörfum í stjórnmálaflokki nauðgaði ungri konu í flokknum í partýi á vegum flokksins. Honum var gert að fara úr öllum trúnaðarstörfum á vegum flokksins en af því að hann er „svo duglegur“ var hann fljótlega mættur á alla pósta/fundi/viðburði. Þegar konur gerðu athugasemdir við þetta og neituðu að taka þátt yrði hann þátttakandi var hann tekinn úr opinberum störfum en geymdur á bak við í aukastörfum enda „svo duglegur“, fyrir utan það hversu slæmt það yrði fyrir fjölskylduna hans ef hann fengi ekki að vera með?…Ekki skrímslavæða ungan mann á uppleið„Þegar ég varð reglulega fyrir kynferðislegri áreitni af samflokksmanni mínum sagði ég femínista og áhrifakonu í flokknum frá hegðun hans. Hún sagði vini mínum að ekki mætti skrímslavæða ungan mann á uppleið. Ég hætti að þora að drekka á viðburðum á vegum flokksins því ég var hrædd um að hann myndi nýta sér yfirburðastöðu sína ef ég yrði of drukkin. Ásökunum mínum var aldrei tekið alvarlega svo ég hætti alveg að mæta á viðburði á vegum svæðisfélagsins sem hann starfaði fyrir vegna þess að mér leið svo illa í kringum hann. Þrátt fyrir að fleiri ungar stúlkur hafi stigið fram og lýst sömu áreitni þá fær hann enn að sinna trúnaðarstörfum innan flokksins.“Reyndi að þvo þetta af í baðiÞað sem mér fannst erfiðast við að fara í stjórnmál var að karlkyninu í flokknum fannst það eiga mig og ég hugsaði alltaf með mér hvort að ég þyrfti að þola öll þessi faðmlög þar sem brjóstin á mér þrýstust upp við viðkomandi, endalausu faðmlög þar sem hendi var haldið um mjaðmirnar og ég dregin að. Eftir mína fyrstu kosningavöku sem oddviti, man ég að ég fór í bað þegar ég fór heim og reyndi að þvo allt þetta af mér, mér var svo misboðið hvað karlmönnum fannst þeir eiga mig. Ég hugsaði, kannski kann ég ekki að setja mörk og læt of mikið yfir mig ganga.Eins og ég sæti þarna allsberAðstoðarmaður ráðherra var í kynnisferð erlendis. Það var mikið spjallað en ég hafði mig ekki mikið í frammi þar sem ég þekkti engan í hópnum þó ég kannaðist við þá sem komu úr stjórnmálunum. Ég var rétt að byrja að segja eitthvað þegar þingmaðurinn í hópnum grípur í hendina á mér og segir yfir hópinn... „Ragnheiður mín, ertu nú ekki til í að hneppa skyrtunni þinni að þér svo að við karlmennirnir í hópnum getum einbeitt okkur að því sem þú hefur að segja.“ Ég tek það fram að ég var í síðerma skyrtu og toppi innanundir þannig að það var frekar lítið að sjá. Það sló þögn á hópinn, mér leið eins og ég sæti þarna allsber.
Birtist í Fréttablaðinu MeToo Mest lesið Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Erlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Innlent Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Innlent Fleiri fréttir Hópur netþrjóta hótar gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Hnökrar í innleiðingu á gjaldfrjálsum strætó fyrir reykvísk ungmenni Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára Bréf ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina Ársæll fékk aftur nei við vitnaleiðslubeiðni Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu Spáð í spilin fyrir komandi kosningar og rætt við vindmylluflutningamenn Astró og Bix í góðu lagi en Norðquist hafnað Skotíþróttamenn langeygir eftir starfsleyfi Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Bein útsending: Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Sjá meira