Grunaður um tilraun til manndráps: Kona tekin hengingartaki þar til hún missti meðvitund Birgir Olgeirsson skrifar 5. desember 2017 10:20 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í annað sinn fram á nálgunarbann yfir manninum sem grunaður er um að beita konu endurtekið ofbeldi. Vísir/gva
Tuttugu og tveggja ára gamall karlmaður situr nú í gæsluvarðhaldi til föstudagsins 15. desember, grunaður um alvarlegt heimilisofbeldi gegn 27 ára gamalli konu.Greint er frá málinu á vef Ríkisútvarpsins en þar segir að lögreglan rannsaki málið sem tilraun til manndráps. Maðurinn er sakaður um að hafa tekið konuna hengingartaki þar til hún missti meðvitund. Ríkisútvarpið segir þetta hafa gerst í Holtunum í Reykjavík aðfaranótt sunnudags. Konan er sögð hafa borið við að hún viti ekki hversu lengi hún hafi verið meðvitundarlaus, en það hafi verið þó nokkur tími. Hún hafi komist aftur til meðvitundar klukkan fimm á sunnudagsmorgun og hlaupið þá í mikilli geðshræringu út úr húsinu og gert nærstöddum viðvart sem höfðu samband við lögreglu. Ríkisútvarpið segir áverka á konunni hafa verið talsverða eftir henginguna og hafi tennur hennar meðal annars brotnað. Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að játning liggi ekki fyrir hjá manninum en Guðmundur segir ekki tímabært að gefa út hvort maðurinn neiti sök. Á vef Ríkisútvarpsins kemur fram að maðurinn eigi annað ofbeldismál á skrá hjá lögreglu gegn þessari sömu konu. Guðmundur Páll segir það mál ekkert ósvipað og því sem átti sér stað um liðna helgi. „En kannski ekki eins svívirðileg árás og þessi um helgina,“ segir Guðmundur sem sagði við RÚV að það væri ekki manninum að þakka að konan lifði af.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími tíu til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira