Beint flug á leiki Íslands komið í sölu Birgir Olgeirsson skrifar 1. desember 2017 19:58 Ljóst er að margir munu vilja fylgja íslenska liðinu á HM karla í knattspyrnu. Vísir/Getty
Nú er ljóst að Ísland leikur í D-riðli á Heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu næsta sumar og margir farnir að huga að því hvernig á að komast á leikina. Ísland mætir Argentínu, Nígeríu og Króatíu í D-riðli en Icelandair tilkynnti fyrir skömmu að sala sé hafin á beinu flugi með flugfélaginu á leiki Íslands í riðlakeppni á HM í Rússlandi. Í tilkynningu frá Icelandair segir að um sé að ræða tveggja sólarhringa ferðir og innifalið sé beint flug, hótel í tvær nætur, ferðir til og frá flugvelli og á leikvanginn og fararstjórn. Verðið er frá 175.000 kr. Í öllum tilvikum er flogið frá Íslandi daginn fyrir leik og komið til baka daginn eftir leik. Ferðirnar þrjár eru eftirfarandi: Flug til Moskvu á leik Íslands og Argentínu. Brottför er frá Keflavíkurflugvelli kl. 15:00 föstudaginn 15. júní og komið heim síðdegis sunnudaginn 17. júní. Flug til Volgograd á leik Íslands og Nígeríu. Brottför er frá Keflavíkurflugvelli kl. 15:00 fimmtudaginn 21. júní og komið heim síðdegis laugardaginn 23. júní. Flug til Rostov á leik Íslands og Króatíu. Brottför er frá Keflavíkurflugvelli kl. 15:00 mánudaginn 25. júní og komið heim síðdegis miðvikudaginn 27. júní. Icelandair segir miða ekki innifalda í pakkanum þar sem þeir verði eingöngu fáanlegir á vef alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, en sala þar hefst 5. desember næstkomandi. Ferðaskrifstofan Gaman ferðir vonast til að geta sett ferðir sýnar á leiki Íslands í Rússlandi til sölu á mánudag. Samkvæmt upplýsingum frá Gaman ferðum er stefnt að því að fljúga á alla leikina.Ferðaskrifstofan Úrval útsýn segist ætla að kynna ferðir eins fljótt og hægt er.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira