Innlent

Bið eftir rými á hjúkrunarheimilum hér á landi hefur lengst á milli ára

Erla Björg Gunnarsdóttir og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Eingöngu einn af hverjum fjórum einstaklingum er undir áttræðisaldri þegar pláss fæst á heimil.
Eingöngu einn af hverjum fjórum einstaklingum er undir áttræðisaldri þegar pláss fæst á heimil. Vísir/GVA
Í nóvember voru 365 einstaklingar á biðlista eftir hjúkrunarrými á landinu öllu. Samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisembættinu hefur bið eftir rými á hjúkrunarheimilum hér á landi hefur lengst á milli ára. 

Í janúar 2014 voru 5,8 einstaklingar á hverja þúsund íbúa 67 ára og eldri á biðlista eftir hjúkrunarrými. Í nóvember á þessu ári voru þeir aftur á móti 8,9 á hverja þúsund íbúa eða um helmingi fleiri. Árið 2014 var miðgildi biðtíma 46 dagar en árið 2017 69 dagar. Þetta kemur fram í Talnabrunni, rafrænu fréttabréfi landlæknis um heilbrigðisupplýsingar.  

Þar kemur einnig fram að um þrjátíu prósent karla þurfi að bíða lengur en 90 daga eftir hjúkrunarrými og yfir fjörutíu prósent kvenna. Einnig að eingöngu einn af hverjum fjórum einstaklingum sé undir áttræðisaldri þegar pláss fæst á heimili.

Í Talnabrunni Landlæknisembættisins eru ýmsar ástæður taldar til vegna lengri biðtíma. Í fyrsta lagi að íslenska þjóðin sé að eldast, einnig hafi aðbúnaður á hjúkrunarheimilum verið bættur, það er herbergi hafa verið stækkuð og þannig hjúkrunarrýmum fækkað. Einnig er tekið fram að hlutfallslega séu fleiri hjúkrunarrými hér á landi en í öðrum Norðurlöndum, en þar sé víða öflugri heimahjúkrun og heimaþjónusta. Æskilegt sé að efla slíka þjónustu hérlendis.


Tengdar fréttir

Fimmti hver deyr í bið inni á Landspítalanum

Fimmtungur þeirra sem bíða á LSH eftir dvalarrými á öldrunarheimilum deyja áður en þeir komast inn á viðeigandi stofnun. Eitt hundrað hjúkrunarrými myndu leysa næstum allan vanda spítalans að mati yfirlæknis bráðadeildar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×