Óvæntur eignarhlutur skilaði 1,5 milljón upp í 663 milljóna líkamsræktargjaldþrot Birgir Olgeirsson skrifar 8. febrúar 2018 14:18 Sportfitness ehf. reyndist eiga eignarhlut í Iðngörðum ehf. sem ekki hafði komið fram við skiptum á þrotabúinu. Vísir/Ernir
Óvæntur eignarhlutur varð þess valdandi að um ein og hálf milljón króna fékkst upp 663 milljóna króna gjaldþrot Sportfitness ehf. Félagið var stofnað af Guðmundi Ágústi Péturssyni í tengslum við útrás íslenskra líkamsræktarfrömuða á danskan markað.Sportfitness ehf. var upphaflega tekið til gjaldþrotaskipta fyrri part árs 2014. Engar eignir fundust þá í búinu og var skiptum í Sportfitness lokið í nóvember 2014 sem eignalausu búi. Bjarni S. Ásgeirsson, skiptastjóri Sportfitness ehf., segir í samtali við Vísi að hins vegar fór félagið Iðngarðar ehf. í gegnum einkaskipti, sem eru skipti á búi án íhlutunar yfirvalds, árið 2017 en það félag var óskylt Sportfitness ehf. Við skipti Iðngarða ehf. kom meðal annars í ljós að þrotabú Sportfitness var hluthafi í Iðngörðum ehf. með nettóeignarhluta upp á 1.667 prósent. Þessi eignarhlutur hafði ekki komið fram við fyrri skipti þrotabús Sportfitness ehf. Bjarni segir að lóð sem Iðngarðar ehf. átti var nýlega seld og komu þá fjármunir til hluthafa og meðal annars til þrotabús Sportfitness ehf. Lögum samkvæmt bar skiptastjóra því að taka upp skiptin og úthluta þeim fjármunum og endanlega ljúka skiptum. Sem fyrr segir var Sportfitness ehf. í eigu Guðmundar Ágústs Péturssonar en félagið var notað til að halda utan um helmings eignarhlut í Þrek Holding ehf. Félagið sem átti hinn helminginn var Þrek ehf. í eigu Björns Leifssonar. Þrek Holding ehf. var notað til að kaupa danska líkamsræktarfélagið Equinox. Útrásin gekk ekki sem skildi og fór félagið Sportfitness ehf. tekið til gjaldþrotaskipta. Guðmundur Ágúst á félagið Sportmenn ehf. sem rekur Reebok fitness-líkamsræktarstöðvarnar. Björn Leifsson er einn af eigendum og framkvæmdastjóri World Class-líkamsræktarstöðvanna.Fréttin hefur verið uppfærð
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira