„Það var ekkert annað í stöðunni en að bregðast hart við,“ segir Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri á Djúpavogi, þar sem nú er beðið eftir heimkomu útskorins fálka eftir Ríkarð Jónsson sem hreppurinn keypti á uppboði í London.
Listamaðurinn Ríkarður Jónsson er frá bænum Strýtu í Hamarsfirði innan við Djúpavog. Dætur Ríkarðs, Ásdís og Ólöf, ánöfnuðu hreppnum allar eignir sínar, þar með talinn fjölda verka sem faðir þeirra hafði gert. Þau eru til sýnis í hinni sögufrægu Löngubúð á Djúpavogi. Og þangað er stefnt fálkanum sem Ríkarður skar út árið 1950 og rataði síðan út til Englands.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu greiddi hreppurinn 200 þúsund krónur fyrir Ríkarðsfálkann á uppboði 6. febrúar.
Gauti segir kveikjuna hafa verið frétt Fréttablaðsins af því að uppboðið stæði fyrir dyrum.
Þá hafi verið hart brugðist við og bresku hjónin Felicity og Michael Bullock, sem eiga jörðina Hvalnes, hafi verið fengin til að mæta og bjóða í fálkann.
„Þau er sjálf að versla með antík og eru öllum hnútum kunnug svo þetta steinlá,“ segir Gauti sem aðspurður jánkar því að hreppurinn hafi verið tilbúinn að greiða enn hærra verð en fálkinn fékkst á. Menn séu því ánægðir með viðskiptin.
List Ríkarðs Jónssonar er gert hátt undir höfði á Djúpavogi.
„Við erum með Ríkarðssafn í Löngubúð og þegar fram líða stundir þá tekur til starfa hér svokallað Ríkarðshús,“ segir Gauti.
Hreppurinn hefur fengið 500 þúsund króna styrk úr Uppbyggingarsjóði Austurlands til að opna sýningu í Löngubúð 1. desember í tilefni eitt hundrað ára afmælis fullveldis Íslendinga.
„Það tengist náttúrlega Ríkarði beint því hann átti upphaflegu hönnunina að íslenska skjaldarmerkinu,“ segir Gauti.
Hann segir hreppinn eiga marga mjög fallega gripi eftir Ríkarð af mjög fjölbreytilegu tagi. Fálkinn muni sóma sér vel innan um þessi verk. „Felicity og Michael koma í vor og taka hann væntanlega með sér – nema það gefist einhver önnur ferð.“
Hreppurinn var tilbúinn að bjóða hærra í fálka Ríkarðs á uppboðinu
Tengdar fréttir
Íslandsfálki Ríkarðs er lágt metinn í London
Breti sem á útskorinn Íslandsfálka eftir Ríkarð Jónsson undrast lágt verðmat á fálkanum hjá uppboðshúsi í London. Tryggvi hjá Fold segir matið eðlilegt miðað við markaðinn úti. Hins vegar myndi mikið hærra verð fást hér á Íslandi.
Fálki Ríkarðs seldur í London fyrir 200 þúsund
„Verðið var kannski í lægri kantinum en sanngjarnt,“ segir Sean Curtis-Ward, eigandi útskorins fálka eftir Ríkarð Jónsson sem seldur var á uppboði í London í gær.