Samið um þorskafla Íslands í Smugunni Birgir Olgeirsson skrifar 23. febrúar 2018 16:41 Frá undirritun samningsins. Sjávarútvegsráðuneytið
Haldinn var samningafundur í fiskveiðinefnd Íslands og Rússlands daganna 19.-20. febrúar. Umræðuefnið var að venju framkvæmd svokallaðs Smugusamnings frá 1999 milli Íslands, Noregs og Rússlands um þorskveiðar íslenskra skipa í lögsögu Noregs og í þessu tilviki í lögsögu Rússlands fyrir árið 2018. Í samningnum er um tvenns konar kvóta að ræða. Annars vegar þann sem ekkert er greitt fyrir og svo hins vegar kvóta sem Ísland fær ef samningar takast um verð. Samningar tókust um magn og verður heildarafli þorsks sem ekkert er greitt fyrir alls 4.409 tonn. Með þessu þorskmagni verður heimill meðafli 30% ofan á magn þorsks en þó má magn ýsu ekki nema meiru en 352 tonnum. Eftir er að ganga frá samningum um verð fyrir hinn svokallaða keypta kvóta en hann er í ár ákveðinn alls 2.646 tonn. Með honum fylgir einnig 30% meðafli, en þar eru takmörk á ýsu 265 tonn. Þá er einnig hluti af samkomulaginu að Rússland fær 1.500 tonn af makríl til veiða á úthafinu af makrílkvóta Íslands.
Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Sjá meira