Arnór leggur skóna á hilluna í sumar Henry Birgir Gunnarsson skrifar 5. mars 2018 14:37 Arnór í landsleik gegn Dönum. vísir/getty
Landsliðsmaðurinn Arnór Atlason hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna í sumar eftir gifturíkan feril. Hann tekur í leiðinni við nýju starfi hjá Álaborg. Arnór hefur nefnilega skrifað undir tveggja ára samning við félagið og mun hann sinna starfi aðstoðarþjálfara. Hann verður Stefan Madsen til halds og trausts en Madsen hefur verið ráðinn aðalþjálfari í stað Arons Kristjánssonar sem hættir í sumar. Arnór hefur verið einn besti handknattleiksmaður þjóðarinnar í áraraðir og er hluti af gullkynslóðinni sem vann silfur á ÓL í Peking árið 2008 og svo silfur á EM í Austurríki tveimur árum síðar. Meiðsli hafa oft gert honum erfitt fyrir en hann er að hætta þó svo hann sé aðeins 33 ára gamall. Á glæstum ferli fyrir landsliðið lék Arnór rúmlega 200 leiki fyrir Ísland. Hann er uppalinn hjá KA en fór í atvinnumennskuna árið 2004 er hann samdi við Magdeburg í Þýskalandi sem þá var þjálfað af Alfreð Gíslasyni. Eftir tvö ár þar fór hann til FCK í Danmörku og árið 2010 varð FCK að ofurliðinu AG þar sem Arnór var fyrirliði. Það ævintýri entist í tvö ár. Þá fór Arnór aftur til Þýskalands og spilaði með stórliði Flensburg í eina leiktíð. Þaðan lá leiðin til St. Raphael í Frakklandi þar sem Arnór spilaði í þrjú ár. Árið 2016 fór hann svo til Álaborgar þar sem hann mun nú ljúka ferli sínum.
Handbolti Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira