Starfsemi Framtakssjóðsins að ljúka Birgir Olgeirsson skrifar 13. mars 2018 17:55 Ásgeir Jónsson, Þorkell Sigurlaugsson og Herdís Fjeldsted Birgir Ísleifur Gunnarsson
Forsvarsmenn Framtakssjóðs Íslands tilkynntu á blaðamannafundi í dag að formlegri starfsemi sjóðsins sé að ljúka. Framtakssjóður Íslands slhf. (FSÍ) var stofnaður í desember 2009 af 16 lífeyrissjóðum. Síðar bættust Landsbankinn og VÍS í hóp hluthafa. Tilgangur sjóðsins var ásamt því að ávaxta innborgað hlutafé að fjárfesta í íslensku atvinnulífi og taka þannig þátt í enduruppbyggingu þess í kjölfar efnahagshrunsins og hruns íslensku bankanna. Áætluð heildarverðmæti FSÍ frá stofnun eru 90,9 milljarðar króna. Á aðalfundi félagsins sem haldinn verður á morgun, 14. mars, verður lagt til að greiddir verði út 11,7 milljarðar króna. Hefur sjóðurinn þá frá stofnun hans greitt eigendum sínum til baka 86,2 milljarða króna. Áætlað gangvirði eftirstandandi eigna er um 4,6 milljarðar króna. Á fundinum kynnti dr. Ásgeir Jónsson, hagfræðingur og dósent við Háskóla Íslands, rit sem hann hefur unnið um starfsemi sjóðsins og ber heitið Framtak við endurreisn. Ritið inniheldur mat höfundar á starfsemi sjóðsins og þeim lærdómi sem hann telur að unnt sé að draga af starfsemi hans til lengri tíma litið. Framtakssjóðurinn fjárfesti í öllum atvinnugreinum landsmanna og endurreisti fyrirtæki sem voru í fjárhags- og eða rekstrarvanda. Á starfstíma sínum fjárfesti FSÍ í níu fyrirtækjum fyrir um 43 milljarða króna. Af þeim eru nú þrjú skráð í Kauphöllinni; Icelandair, Vodafone og N1. Önnur félög eru nú hluti af rekstri stærri samstæðu; Advania, Húsasmiðjan, Invent Farma, Plastprent og Promens. Eitt félag, Icelandic Group var selt í hlutum. Alls fjárfesti sjóðurinn fyrir 43,3 milljarða og hagnaðist um 47,7 milljarða króna. Vænt árleg innri ávöxtun sjóðsins er 22,6%. „Þessi vegferð Framtakssjóðsins hefur verið mjög árangursrík. Með fjárfestingum sjóðsins í íslensku atvinnulífi hefur átt sér stað mikil verðmætasköpun, bæði efnahagsleg og samfélagsleg. Lok starfsemi sjóðsins marka því viss tímamót og kaflaskil í uppgjöri þjóðarinnar við bankahrunið. Í upphafi voru sjóðnum sett viss tímamörk til að sinna hlutverki sínu við uppbyggingu atvinnulífsins og því hlutverki er nú lokið,“ er haft eftir Þorkatli Sigurlaugssyni, stjórnarformanni FSÍ, í tilkynningu um málið. „Framtakssjóðurinn var stofnaður á afar krefjandi tímum í íslensku efnahagslífi. Á þessum tíma var gríðarlega mikilvægt að koma á hreyfingu fjármagns í atvinnulífinu, losa sem fyrst um eignir sem lágu í bönkunum og síðast en ekki síst að byggja upp öflugri félög á grunni þeirra félaga sem höfðu farið mjög illa með bankahruninu. Það lá frá upphafi ljóst fyrir að fjárfestingagetan lá fyrst í stað aðallega hjá lífeyrissjóðunum. Þátttaka þeirra í stofnun FSÍ gerði kleift að ráðast í endurreisn þjóðhagslega mikilvægra fyrirtækja og vinna í endurskipulagningu og stefnumótun íslensks atvinnulífs til framtíðar þjóðinni til heilla,“ er haft eftir Herdísi Fjeldsted, framkvæmdastjóra FSÍ. „Mikil andstaða var við stofnun ríkisrekins eignarhaldsfélags sem hugmyndir voru um á sínum tíma, sem hefði ekki verið góður kostur. Því var stofnun Framtakssjóðsins augljós leið til þess að endurreisa íslenskt efnahagslíf eftir áfallið 2008 sem eins konar rökrétt framhald af hinni innlendu/erlendu skiptingu bankanna,“ er haft eftir dr. Ásgeiri Jónssyni hagfræðingi.
Mest lesið Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Neytendur Fleiri fréttir „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Sjá meira