Origo kaupir hugbúnaðarfyrirtækið Benhur Samúel Karl Ólason skrifar 20. apríl 2018 09:53 Hákon Sigurhansson framkvæmdastjóri Hugbúnaðarlausna Origo.
Félagið Origo hefur keypt hugbúnaðarfyrirtækið Benhur. Samkvæmt tilkynningu er markmiðið með kaupunum á Benhur er að breikka lausnaframboð Origo á heilbrigðissviði, svo sem með lausnum og þjónustu til rannsóknastofa. „Starfsemi Benhur fellur afar vel að heilbrigðislausnum Origo og veruleg samlegð fæst með kaupunum,“ segir Hákon Sigurhansson framkvæmdastjóri Hugbúnaðarlausna Origo. „Í kjölfarið getum við boðið lausnir og þjónustu fyrir rannsóknarstofur og veitt aðilum á heilbrigðissviði enn betri þjónustu.“ Benhur hefur selt og þjónustað hugbúnað fyrir rannsóknarstofur á heilbrigðissviði frá belgíska fyrirtækinu MIPS í 14 ár. Landspítalinn hefur notað CLIMS rannssóknarstofukerfið og Cyberlab beiðna- og svarakerfi frá MIPS í fjölda ára. Innleiðing á kerfunum stendur einnig yfir á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þá er innleiðing á Erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítalans í undirbúningi. Benhur varð hluti af Heilbrigðislausnum Origo frá og með 1. apríl. Þá gekk Skúli Barker, fyrrum eigandi Benhur, til liðs við Origo. Hann mun áfram sinna þjónustu og ráðgjöf fyrir notendur Clims og Cyberlab frá MIPS. Kaupin á Benhur hafa óveruleg áhrif á rekstur og afkomu Origo. Origo varð til við sameiningu Nýherja, Applicon og TM Software. Hjá Origo starfa hátt í 430 manns og dótturfélög Origo eru Tempo og Applicon í Svíþjóð.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira