Ekið í veg fyrir lögreglumann á bifhjóli í forgangsakstri Birgir Olgeirsson skrifar 11. maí 2018 14:35 Frá vettvangi slyssins. Aðsend
Lögreglumaður á bifhjóli virðist hafa sloppið við alvarleg meiðsli þegar ekið var í veg fyrir hann í forgangsakstri. Lögreglumaðurinn hafði svarað útkalli vegna umferðaróhapps á gatnamótum Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar. Hafnaði bifhjól lögreglumannsins á bíl sem ekið var í veg fyrir hann. Er lögreglumaðurinn sagður hafa kastast yfir bílinn sem ók á bifhjólið en samkvæmt sjónarvottum á vettvangi stóð lögreglumaðurinn upp eftir slysið og beið eftir sjúkraflutningsmönnum. Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að svo virðist vera sem að lögreglumaðurinn hafi ekki slasast alvarlega. Það megi að mörgu leyti þakka öryggisbúnaði sem lögreglumenn notast við þegar þeir aka bifhjólum. Var lögreglumaðurinn fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu virðist enginn hafa slasast alvarlega í þessum tveimur umferðaróhöppum. Einhverjar tafir urðu á umferð til austurs vegna óhappsins en vinnu viðbragðsaðila á vettvangi fer senn að ljúka.
Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Fleiri fréttir Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Sjá meira