Segja innbrotsþjófana fundna Samúel Karl Ólason skrifar 31. maí 2018 22:15 Óli segist þakka fyrir að um fyrirtæki sé að ræða en ekki heimili, þó málið sé ömurlegt. Vísir/Vilhelm
Búið er að handtaka þá sem brutust inn í Gullsmiðju Óla í Hamraborg í Kópavogi aðfaranótt miðvikudags. Þetta segir Hanna Rún Bazev Óladóttir, dóttir Óla Jóhanns Daníelssonar gullsmiðs, á Snapchat þar sem hún segir að málið hafi verið upplýst. Óli segir í samtali við Vísi að hann hafi heyrt að þjófarnir hafi fundist en lögreglan hefur ekki haft samband við hann. Það var rétt rúmlega fjögur í fyrri nótt sem Óli Jóhann fékk símtal frá Securitas þar sem honum var tilkynnt um innbrotið. Þegar hann mætti á vettvang skömmu síðar mættu honum brotnar rúður, skápar, turnar og afgreiðsluborð.Sjá einnig: Glerbrot og blóð út um allt: „Ömurleg aðkoma“Innbrotsþjófarnir munu hafa verið tveir karlar og ein kona, öll íslensk, og mun lögreglan hafa sleppt þeim aftur. „Ætli þau séu ekki bara í bíó,“ segir Óli. Á Snapchat segir Hanna Rún það mikinn létti að vita til þess að innbrotsþjófarnir hafi verið fundnir. Þá þakkar hún, fyrir hönd foreldra sinna, öllum þeim sem sendu fallegar kveðjur og buðu fram hjálp sína eftir innbrotið. Sævar Örn, tengdasonur Óla Jóhanns, birti í dag myndband á Facebook-síðu sinni sem sýnir meinta innbrotsþjófa mæta á vettvang klukkan 4:04 aðfaranótt miðvikudags. Athygli vakti að Sævar hvetur fólk ekki til að hafa samband við lögreglu heldur við sig. Og hvetur fólk til að koma hreinlega með fólkið til sín.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira