Fótbolti

Leikmönnum Íslands á HM í Rússlandi raðað upp eftir hæð og þyngd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Frederik Schram í leiknum á móti Noregi um síðustu helgi.
Frederik Schram í leiknum á móti Noregi um síðustu helgi. Vísir/Getty
Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur nú skilað formlega inn 23 manna lista til FIFA og það er því endanlega staðfest hvaða leikmenn munu spila fyrir íslenska landsliðið á HM í Rússlandi.

FIFA birti jafnframt leikmannalista íslenska liðsins á heimasíðu með listum hinna þjóðanna og þar voru einnig með aðrar upplýsingar eins og aldur, leikstaða, leiknúmer og svo bæði hæð og þyngd. Það er fróðlegt að skoða þann lista aðeins betur en hann er aðgengilegur hér.

Markvörðurinn Frederik Schram er bæði hávaxnasti og þyngsti leikmaður íslenska leikmannahópsins en bakvörðurinn Ari Freyr Skúlason er bæði lágvaxnasti leikmaðurinn sem og sá léttasti.

Frederik Schram er fimm sentímetrum stærri en markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson sem er í 2. sæti. Kári Árnason og Hörður Björgvin Magnússon eru hávöxnustu útileikmenn liðsins en þeir eru sjö sentímetrum lægri en Frederik.

Jón Daði Böðvarsson fer upp fyrir Hannes Þór Halldórsson þegar kemur að þyngdinni og landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson hoppar þar upp um sextán sæti miðað við sentímetralistann.





Hér fyrir neðan má sjá íslenska landsliðshópnum raðað upp eftir hæð og þyngd.

Hæsti leikmaður íslenska landsliðsins á HM 2018:

1. Frederik Schram 198 sm

2. Hannes Þór Halldórsson 193 sm

3. Kári Árnason 191 sm

3. Hörður Björgvin Magnússon 191 sm

5. Jón Daði Böðvarsson 189 sm

6. Sverrir Ingi Ingason 188 sm

6. Hólmar Örn Eyjólfsson 188 sm

8. Ragnar Sigurðsson  187 sm

8. Björn Bergmann Sigurðarson 187 sm

10. Gylfi Þór Sigurðsson 186 sm

10. Birkir Már Sævarsson 186 sm

10. Emil Hallfreðsson 186 sm

10. Rúnar Alex Rúnarsson 186 sm

14. Samúel Friðjónsson 185 sm

14. Alfreð Finnbogason 185 sm

16. Ólafur Ingi Skúlason 184 sm

16. Rúrik Gíslason 184 sm

18. Birkir Bjarnason 183 sm

18. Arnór Ingvi Traustason 183 sm

20. Aron Einar Gunnarsson 181 sm

21. Jóhann Berg Guðmundsson 179 sm

22. Albert Guðmundsson 177 sm

23. Ari Freyr Skúlason 170 sm

Þyngsti leikmaður íslenska landsliðsins á HM 2018:

1. Frederik Schram 92 kg

2. Jón Daði Böðvarsson 89 kg

3. Hannes Þór Halldórsson 88 kg

4. Aron Einar Gunnarsson 86 kg

4. Emil Hallfreðsson 86 kg

4. Ragnar Sigurðsson 86 kg

7. Hörður Björgvin Magnússon 85 kg

7. Björn Bergmann Sigurðarson 85 kg

9. Gylfi Þór Sigurðsson 82 kg

9. Kári Árnason 82 kg

11. Hólmar Örn Eyjólfsson 81 kg

12. Sverrir Ingi Ingason 80 kg

12. Albert Guðmundsson 80 kg

14. Ólafur Ingi Skúlason 79 kg

14. Alfreð Finnbogason 79 kg

16. Rúrik Gíslason 78 kg

16. Samúel Friðjónsson 78 kg

18. Jóhann Berg Guðmundsson 77 kg

18. Birkir Bjarnason 77 kg

20. Rúnar Alex Rúnarsson 76 kg

21. Birkir Már Sævarsson 75 kg

22. Arnór Ingvi Traustason 73 kg

23. Ari Freyr Skúlason 63 kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×