Geislabyssa Hans Óla seldist á rúma hálfa milljón dollara Kjartan Kjartansson skrifar 24. júní 2018 10:10 Ófár geimverur fengu að kenna á geislabyssu Hans Óla í Stjörnustríði. Vísir/Getty
Byssan sem Harrison Ford mundaði í hlutverki sínu sem Hans Óli í einni af upprunalegu Stjörnustríðsmyndunum seldist á uppboði í New York fyrir 550.000 dollara í gær. Kaupverðið var enn hærra en það sem fékkst fyrir geislabyssu Loga geimgengils. Leikmunurinn er að mestu leiti úr viði. Hann var notaður í þriðju mynd upphaflega þríleiksins, „Jedinn snýr aftur“. Geislabyssan hefur verið í eigu James Schoppe, listræns stjórnanda myndarinnar, undanfarin þrjátíu ár, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Schoppe var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir myndina. Geislabyssa Loga geimgengils, sem Mark Hamill túlkaði, seldist á 450.000 dollara. Fjörutíu aðrir Stjörnustríðsmunir úr safni Schoppe voru einnig seldir á uppboðinu, þar á meðal öxi Ewoka og teikning að skipi Jabba Hutt. Dýrasti Stjörnustríðsgripur sem selst hefur var hins vegar R2-D2-vélmenni sem var notað í nokkrum myndanna. Það fór á 2,7 milljónir dollara á uppboði í Los Angeles í fyrra.
Mest lesið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Lífið Sonur Cindy Crawford er látinn Lífið Sjóðurinn tómur Lífið Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Lífið Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Lífið Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Lífið 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Áskorun Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Sjá meira