Aftur endurkoma í seinni hjá strákunum hans Dags og nú vannst sigur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. ágúst 2018 10:30 Dagur Sigurðsson. Vísir/Getty
Strákarnir hans Dags Sigurðssonar í japanska landsliðinu eiga enn möguleika á því að komast í undanúrslit á Asíuleikunum í handbolta eftir þriggja marka sigur á Írak í milliriðli keppninnar í dag. Japanska liðið vann leikinn 27-24 eftir að hafa verið 12-15 undir í hálfleik. Japan varð að vinna leikinn til að eiga möguleika á sæti í undanúrslitunum. Hiroki Motoki var hetja sinna manna í dag með 9 mörk úr 11 skotum en Yuto Agarie skoraði 7 mörk úr 10 skotum. Þetta var annar leikurinn í röð þar sem Dagur nær að kveikja í sínum mönnum eftir slæma byrjun. Japan náði jafntefli á móti Sádí Arabíu eftir að hafa verið fimm mörkum undir um miðjan seinni hálfleik. Sá leikur mátti heldur ekki tapast. Að þessu sinni var Japan fjórum mörkum undir, 14-18, þegar 26 mínútur voru eftir af leiknum. Japanir skoruðu þá fjögur mörk í röð, unnu ennfremur næstu fjórtán mínútur 8-2 og tóku frumkvæðið í leiknum. Japanska liðið náði mest fimm marka forystu á lokakafla leiksins en Írakarnir náðu að skora tvö síðustu mörkin og minnka muninn í þrjú mörk. Japan er með 3 stig í milliriðlinum, einu stigi meira en Katar og tveimur stigum meira en Sádí Arabía. Katarbúar og Sádar mætast seinna í dag. Síðasti leikur Japans í milliriðlinum er síðan á móti Katar.
Handbolti Tengdar fréttir Aron lagði sigursælasta liðið og er kominn í undanúrslit Barein vann sannfærandi sigur á Suður-Kóreu og spilar um verðlaun á Asíuleikunum. 22. ágúst 2018 08:33 Dagur vakti sína menn þegar útlitið var svart og þeir náðu í mikilvægt stig Japanska handboltalandsliðið náði að vinna sig út úr erfiðri stöðu í fyrsta leik sínum í milliriðlinum á Asíuleikunum í handbolta í dag og tryggja sér 26-26 jafntefli við Sádi-Arabíu. 20. ágúst 2018 14:45 Barein búið að vinna alla leikina sína undir stjórn Arons Barein vann fjórða leikinn sinn í röð á Asíuleikunum í handbolta í dag þegar liðið vann íranska landsliðið með sex marka mun, 29-23. 20. ágúst 2018 14:09 Mest lesið Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Gagnrýnir blaðamann sem gerði grín að útliti hennar Sport Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfubolti Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Körfubolti Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Enski boltinn Dagskráin í dag: Lögmál leiksins, píla, snóker og fótbolti Sport Fleiri fréttir Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Fram flaug áfram í bikarnum Sigurjón hættur með Gróttu Sjá meira
Aron lagði sigursælasta liðið og er kominn í undanúrslit Barein vann sannfærandi sigur á Suður-Kóreu og spilar um verðlaun á Asíuleikunum. 22. ágúst 2018 08:33
Dagur vakti sína menn þegar útlitið var svart og þeir náðu í mikilvægt stig Japanska handboltalandsliðið náði að vinna sig út úr erfiðri stöðu í fyrsta leik sínum í milliriðlinum á Asíuleikunum í handbolta í dag og tryggja sér 26-26 jafntefli við Sádi-Arabíu. 20. ágúst 2018 14:45
Barein búið að vinna alla leikina sína undir stjórn Arons Barein vann fjórða leikinn sinn í röð á Asíuleikunum í handbolta í dag þegar liðið vann íranska landsliðið með sex marka mun, 29-23. 20. ágúst 2018 14:09