Lífeyrissjóðirnir fjárfesti í grænum og sjálfbærum kostum Kjartan Kjartansson skrifar 7. september 2018 14:30 Olíuvinnslu á Drekasvæðinu hefur verið mótmælt í fyrri loftslagsgöngum í Reykjavík. Hún virðist þó út úr myndinni eins og er. Vísir
Fénu sem Íslendingar leggja í lífeyrissjóði ætti að verja í að styðja græn viðskipti. Þetta segir Gró Einarsdóttir, ein af skipuleggjendum Loftslagsgöngunnar, sem telur að hluti af fjárfestingum lífeyrissjóða ætti að vera sjálfbær. Gangan verður farin í þriðja sinn á laugardag. Markmið Loftslagsgöngunnar er að krefjast tafarlausra aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda sem valda loftslagsbreytingum á jörðinni. Þema göngunnar í ár er baráttugleði. Gró, sem er doktor í félags- og umhverfissálfræði, segir að full ástæða sé fyrir baráttu nú um mundir og vísar hún til hitameta sem slegin hafa verið víða um norðurhvel jarðar í sumar. „Baráttugleðin kemur líka svolítið út af því að það eru ofboðslega margir sem finna fyrir vonleysi eða finnst vera of mikið aðgerðaleysi. Við viljum með þessari göngu sýna fram á að það er samstaða um þessi málefni, að það er stuðningur við aðgerðir og að maður þurfi ekki að vera einn í baráttunni,“ segir Gró. Gangan sé þó ekki pólitísk. Markmiðið sé að þeir sem gangi séu sameinaðir gegn því sem Gró kallar „loftslagsröskun“. „Mér finnst „breytingar“ hljóma eins og þetta sé eitthvað sem er eðlilegt. Það sem er að gerast í loftslaginu er röskun,“ segir Gró. Meðalhiti jarðar hefur hækkað um eina gráðu á selsíus frá tímabilinu fyrir iðnbyltingu. Loftslagsvísindamenn segja að menn beri ábyrgð á 100% eða meira af þeirri hlýnun með losun sinni á gróðurhúsalofttegundum, fyrst og fremst með bruna á jarðefnaeldsneyti eins og kolum, olíu og gasi. Stjórnvöld gangi fram með góðu fordæmi Kröfur Loftslagsgöngunnar eru margþættar, til að mynda að gripið verði til aðgerða til þess að endurheimta votlendi. Gró segir að meginkrafan sé sú að stjórnvöld standi fyrir árangursríkum aðgerðum. „Okkur finnst mikilvægt að það séu stjórnvöld sem greiða götuna í þessum málum og sýni gott fordæmi og hjálpi bæði einstaklingum, fyrirtækjum og sveitarfélögum að vinna í þessum málum,“ segir hún. Sjálf leggur Gró persónulega áherslu á að peningar sem fólk leggur í lífeyrissjóðina, sem séu stærstu fjárfestar landsins, sé varið til að styðja við græn viðskipti og að hluti fjárfestinga sjóðanna verði sjálfbær. Þær fjárfestingar þurfi ekki að skila verri ávöxtun en aðrar en að þær gangi fram hjá jarðefnaeldsneytisiðnaðinum. „Mín uppáhaldskrafa er að hugsa um að þetta eru okkar peningar og þetta er líka okkar framtíð. Þá er mjög mikilvægt hvernig við ætlum að fjárfesta þessa peninga“. Gró Einarsdóttir er ein af skipuleggjendum Loftslagsgöngunnar í ár.Salbjörg Rita JónsdóttirÍsland ekki nýtt tækifæri sín til aðgerða nægilega velÍslensk stjórnvöld hafa verið sökuð um að draga lappirnar í loftslagsmálum. Allt stefnir í að Ísland standist ekki skuldbindingar sínar um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda á öðru tímabili Kýótóbókunarinnar. Umhverfisstofnun sagði frá því í fyrra að líklega þyrfti að kaupa losunarheimildir fyrir um 3,6 milljónir tonna af koltvísýringsígildum fyrir tímabilið. Þeim aðgerðum sem stjórnvöld hafa gripið til er lýst í nýlegu svari Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfisráðherra, við fyrirspurn Ólafs Ísleifssonar, þingmanns Flokks fólksins. Auk eldsneytisgjalda nefndi ráðherrann kolefnisgjald, þátttöku í evrópsku viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir stóriðju og flug, ívilnanir til rafbíla, styrki til uppbyggingar rafhleðslustöðva, verkefni sem stuðla að minni matarsóun og kolefnisbindingu með skógrækt og landgræðslu. Til stóð að lokið yrði við nýja aðgerðaáætlun í loftslagsmálum fyrir síðustu áramót en sú sem nú er í gildi er orðin átta ára gömul. Hún frestaðist hins vegar vegna ríkisstjórnarskipta síðasta haust. Samkvæmt heimildum Vísis hyggst ríkisstjórnin kynna áætlunina nú í byrjun hausts. Gró segir að Ísland hafi ekki nýtt tækifæri sín til að fara í fararbroddi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Möguleikarnir hér séu miklir, meðal annars vegna greiðs aðgengis að hreinni orku. „Ég held að það eigi bara að vera yfirlýst markmið Íslendinga og stjórnvalda að við ætlum að vera best í heimi í þessu. Við höfum verið að standa okkur ótrúlega vel í jafnréttismálunum og veitt öðrum innblástur með okkar starfi. Ég held að Ísland geti orðið þannig en við erum það svo sannarlega ekki núna. Það vantar alltof mikið upp á á mörgum stöðum,“ segir hún. Sérstaklega segir Gró að Íslendingar standi sig illa þegar kemur að samgöngumálum. „Þar vil ég sjá mikið átak, bæði betri orkugjafa í hvernig við ferðumst en líka meiri og betri almenningssamgöngur,“ segir hún.Loftslagsgangan verður gengin frá Hallgrímskirkju klukkan 14:00 á morgun, laugardaginn 8. september, og endar á baráttufundi á Lækjartorgi.
Loftslagsmál Umhverfismál Olíuleit á Drekasvæði Tengdar fréttir Íslenskir flugrekendur juku koltvísýringslosun um rúm 13% Tölurnar ná ekki til Ameríkuflugs íslenskra félaga og ekki heldur til losunar vegna ferða erlendra félaga til og frá Íslandi. 28. ágúst 2018 11:38 Hitamet slegin um allt norðurhvel Hásumar er nú á norðurhveli en hitinn á mörgum stöðum hefur verið sérstaklega mikill undanfarið. 4. júlí 2018 15:20 Staðfesta að 2017 var þriðja hlýjasta árið frá upphafi mælinga Síðustu þrjú ár eru þau hlýjustu frá því að mælingar hófust upp úr miðri 19. öldinni. 1. ágúst 2018 18:39 Mesti hiti í 262 ár Á meðan við hér uppi á Íslandi kvörtum yfir kulda og votviðri fárast frændur okkar í Svíþjóð yfir hita og rigningarleysi. 25. júlí 2018 06:00 Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Fleiri fréttir Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Sjá meira
Íslenskir flugrekendur juku koltvísýringslosun um rúm 13% Tölurnar ná ekki til Ameríkuflugs íslenskra félaga og ekki heldur til losunar vegna ferða erlendra félaga til og frá Íslandi. 28. ágúst 2018 11:38
Hitamet slegin um allt norðurhvel Hásumar er nú á norðurhveli en hitinn á mörgum stöðum hefur verið sérstaklega mikill undanfarið. 4. júlí 2018 15:20
Staðfesta að 2017 var þriðja hlýjasta árið frá upphafi mælinga Síðustu þrjú ár eru þau hlýjustu frá því að mælingar hófust upp úr miðri 19. öldinni. 1. ágúst 2018 18:39
Mesti hiti í 262 ár Á meðan við hér uppi á Íslandi kvörtum yfir kulda og votviðri fárast frændur okkar í Svíþjóð yfir hita og rigningarleysi. 25. júlí 2018 06:00