Maðurinn sem leitað var að við Helgafell fundinn Birgir Olgeirsson skrifar 21. september 2018 22:02 Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út. Vísir/Ernir
Ferðamaðurinn sem björgunarsveitarmenn leituðu að í kvöld fannst rétt fyrir klukkan ellefu. Það var hópur björgunarsveitarmanna frá Reykjavík sem fann manninn. Hann var orðinn mjög kaldur þegar komið var að honum og útveguðu björgunarsveitarmenn honum hlýrri föt og er nú verið að meta hvernig honum verður komið til byggða. Útkallið barst um klukkan tíu í kvöld en þá var tilkynnt um erlendan ferðamann sem hafði hringt í Neyðarlínuna og greint frá því að hann væri villtur og rataði ekki til byggða. Var maðurinn á gangi á upplandi Hafnarfjarðar, í grennd við Helgafell. Hann gat ómögulegt sagt til um hvar hann var staddur en komið myrkur. Sagðist hann ekki treysta sér til að halda för sinni áfram og sagðist vera kaldur og hrakinn. Tugir björgunarsveitarmanna af suðvesturhorni landsins voru ræstir út, meðal annars björgunarsveitarmenn sem voru við æfingar á Reykjanesbraut. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út og til skoðunar að notast við hitamyndavél við leit að manninum.Fréttin var síðast uppfærð klukkan 22:57.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent „Ríkið á stóra sök á þessu“ Innlent Fleiri fréttir Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni Sjá meira