Fullyrða að hótelstarfsmaðurinn hafi verið með 615 þúsund í mánaðarlaun Hulda Hólmkelsdóttir og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 3. október 2018 15:30 Pakistaninn Sana Shah segist hafa sætt hótunum af hálfu fyrirtækisins sem réð hann til starfa í Ólafsvík. Hann hafi verið látinn vinna í sextán tíma þótt hann hafi átt að stimpla sig út eftir átta tímal RÚV
Northstar Apartments hafnar fréttaflutningi um að fyrirtækið sæti lögreglurannsókn vegna mansals, eins og kom fram í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV í gærkvöldi. Í tilkynningu frá Northstar segir að lögreglan hafi tekið málið til skoðunar en komist að þeirri niðurstöðu að ekkert væri hæft í ásökunum þess efnis. „Northstar Apartments hefur aldrei komið nálægt neinu sem tengist mansali og fordæmir öll slík mannréttindabrot og glæpastarfsemi,“ segir í tilkynningu sem Aðalsteinn Gíslason hjá Northstar Apartments skrifar undir.Karl Steinar Valsson, yfirmaður miðlægrar deildar lögreglu, staðfestir hins vegar við Vísi að lögreglurannsókn sé í gangi í málinu. Í umfjöllun Kveiks var saga Pakistanans Sana Shah rakin. Hann lýsti því hvernig hann hefði komið til Íslands í fyrra eftir að hafa starfað sem rútubílstjóri í Dúbaí. Atvinnutilboð frá Northstar hafi hljómað vel en annað komið á daginn þegar hann kom. Shah fullyrðir að fyrirtækið hafi krafið hann um að reiða fram fé fyrir atvinnuleyfi, tæplega milljón krónur, sem á endanum hafi verið dregið af launum hans mánaðarlega. Þessu hafnar fyrirtækið og segir Shah hafa sýnt af sér ógnandi framkomu. Shah neitaði fyrir það í þættinum.Kveikur hafði eftir eigendum hótelkeðjunnar að þeir ætluðu ekki að tjá sig á meðan lögreglurannsókn stæði yfir.Segja uppsögn byggða á lögmætum ástæðum Northstar hafnar því að 1,5 milljónir króna hafi verið dregnar af launum fyrrverandi starfsmann, eins og fram kom í máli Shah í þættinum. Hann segir Northstar hafa beðið hann um fleira starfsfólk og hann athugað með bróður sinn og tvo aðra. Hann hafi reitt fram háar fjárhæðir vegna þessa sem Northstar hafi neitað að endurgreiða þegar hætt var við að fá mennina til landsins. Shah segir að fyrirtækið hafi á endanum sagt honum að fara heim til Pakistan í mánaðarfrí. Á meðan því stóð hafi honum verið sagt upp. Þessu hafnar Northstar. „Umræddum starfsmanni var sagt upp störfum vegna þess að hann sýndi ógnandi framkomu gagnvart öðru starfsfólki og sinnt störfum sínum illa. Umræddur starfsmaður starfaði hjá fyrirtækinu í 8 mánuði. Á því tímabili fékk hann greidd laun að fjárhæð 615.000 kr.- að meðaltali á mánuði og þar með talið eins mánaða uppsagnafrest og tvo mánuði greidda í starfslokasamning.“ Fyrirtækið lýsir yfir vonbrigðum með vinnubrögð starfsgreinasambandsins í málinu, segist hafa sent öll gögn til Verkalýðsfélags Snæfellsness sem sýni að ekkert er óeðlilegt við framkomu fyrirtækisins í garð umrædds starfsmanns og að uppsögn hans hafi byggt á lögmætum og eðlilegum ástæðum. Þá segir Aðalsteinn Gíslason, eigandi Northstar, að vinnubrögð Ríkisútvarpsins í málinu valdi einnig vonbrigðum og að við vinnslu fréttar Kveiks hafi aldrei verið haft samband við eigendur eða þeir beðnir um að greina frá sinni hlið málsins, „Það er miður að þegar fjallað er um jafn mikilvæg mál og réttindi og stöðu erlends launafólks hér á landi að grafið sé undan trúverðugleika umfjöllunarinnar með jafn ámælisverðum vinnubrögðum og Starfsgreinasambandið og RÚV hafa sýnt af sér í umfjöllun um Northstar Apartments.“Uppfært klukkan 16:40Karl Steinar Valsson, yfirmaður miðlægrar deildar lögreglu, staðfestir í samtali við Vísi að lögreglurannsókn standi yfir í málinu vegna gruns um mansal. Þá hefur Kveikur birt tölvupóstssamskipti við forsvarsmenn Northstar Apartments. Nánar hér.
Snæfellsbær Tengdar fréttir Hafa lokað fimm húsum hvar erlent verkafólk bjó Þáttur Kveiks um þrælahald á Íslandi hefur kallað fram mikil viðbrögð. 3. október 2018 11:22 Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Sjá meira
Hafa lokað fimm húsum hvar erlent verkafólk bjó Þáttur Kveiks um þrælahald á Íslandi hefur kallað fram mikil viðbrögð. 3. október 2018 11:22