Haukur Ingvarsson hlaut í dag 18. október Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2018 fyrir ljóðahandritið Vistarverur. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, staðgengill borgarstjóra, veitti verðlaunin sem nema 800 þúsund krónum að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Haukur Ingvarsson er fæddur árið 1979. Hann lauk meistaraprófi í íslenskum bókmenntum árið 2005 og hefur síðan fengist við ritstörf og dagskrárgerð í útvarpi. Hann leggur nú stund á doktorsnám í íslenskum bókmenntum og skrifar um viðtökur Williams Faulkner á Íslandi.
Fyrsta ljóðabók Hauks, Niðurfall og þættir af hinum dularfulla Manga, kom út 2005 og í kjölfarið komu fræðibókin Andlitsdrættir samtíðarinnar: Síðustu skáldsögur Halldórs Laxness (2009) og skáldsagan Nóvember 1976 (2011).
Alls bárust 60 óbirt ljóðahandrit undir dulnefni. Dómnefndina skipuðu Úlfhildur Dagsdóttir formaður, Þórarinn Eldjárn og Börkur Gunnarsson.
Í niðurstöðu dómnefndar segir:
„Í ljóðabók Hauks Ingólfssonar eru margar Vistarverur. Orðið sjálft, vistarvera, gefur til kynna tilfinningu fyrir stað og íbúa auk þess að vísa til tilvistarinnar sjálfrar og stöðu verunnar í henni. Allt þetta kemur saman í ljóðunum en þau einkennast af vangaveltum um tengsl hins efnilega og hins andlega, með áherslu á samfellu þessa.
Þannig verða byggingar og skip framlenging af sjálfi ljóðmælanda, minningar og draumar taka á sig áþreifanlega mynd í hinum ýmsu vistarverum og veruleikinn sjálfur er jafnframt bundin upplifunum og tengslum við stað og stundir. Ljóðmælandi er á stundum líkt og einskonar draugur í eigin tilveru, hann veltir fyrir sér stöðu sinni í umhverfi sínu og sjálfsmynd og gluggar í stórar spurningar jafnt sem smáar.
Tóntegundin einkennist af hógværð í bland við íhygli og kímni. Heildarmyndin er falleg, margræð og fjölkunnug.“
Haukur hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar

Tengdar fréttir

Hjörtur hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar
Hjörtur Marteinsson var afhent Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2014 fyrir ljóðahandritið Alzheimer-tilbrigðin í Höfða fyrr í dag.

Ragnar Helgi hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veitti verðlaunin í Höfða í dag.

Bjarki hlaut Bókmennaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
Bjarki Karlsson hlaut í dag Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2013 fyrir ljóðahandritið Árleysi Alda.

Eyrún Ósk hlýtur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
Eyrún Ósk Jónsdóttir hlaut í dag Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir árið 2016 fyrir ljóðahandritið Góðfúslegt leyfi til sígarettukaupa en Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veitti henni verðlaunin í dag sem nema 700 þúsund krónum. Fyrstu eintökin af bókinni komu um leið úr prentun í útgáfu Bjarts.

Jónas Reynir hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
Jónas Reynir Gunnarsson var í dag verðlaunaður fyrir ljóðahandritið Stór olíuskip.