Handbolti

Valur úr leik í Evrópu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Morgan Marie Þorkelsdóttir
Morgan Marie Þorkelsdóttir vísir/bára
Valur er úr leik í Áskorendabikar Evrópu eftir tap í seinni leiknum gegn hollenska liðinu Quintus í dag.

Valur átti erfitt verkefni fyrir höndum í dag eftir fjögurra marka tap í fyrri leiknum í gær. Valskonur náðu ekki að gefa sér mikla von í dag, þær voru 9-11 undir í hálfleik og töpuðu leiknum 20-21.

Morgan Marie Þorkelsdóttir var markahæst Valskvenna með sex mörk. Sandra Erlingsdóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir skoruðu þrjú mörk hvor.

Evrópuævintýri Vals er því úti þetta árið eftir samanlagt 45-40 tap.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×