Á þessum degi minnir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) á að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna veitir öllum börnum um allan heim mikilvæg réttindi. Yfirskrift átaks UNICEF á Íslandi á alþjóðadegi degi barna er #börnfáorðið og því fór Ævar Þór ásamt fulltrúum frá UNICEF í stjórnarráðið með skilaboð sem börnin vonast til að ríkisstjórnin beri áfram til leiðtoga heimsins.
„Þetta skiptir mjög miklu máli að fá að heyra hvað börnin hafa að segja,“ sagði forsætisráðherra, að því er fram kemur í frétt frá UNICEF. Fram kom að á næsta ári sé ætlunin að halda sérstakt barnaþing, í fyrsta skiptið á Íslandi, þar sem börn hvaðanæva af landinu geta sett málefni á dagskrá. Katrín sagði einnig að málefni barna væru eitt af forgangsmálum Íslands í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. „Það skiptir máli að passa uppá öll börn í heiminum,“ sagði hún.
Markmið dagsins er að gefa börnum og ungmennum orðið, og skapa vettvang fyrir þau til að tjá skoðanir sínar opinberlega og í nærumhverfi sínu. UNICEF á Íslandi hvetur því fjölmiðla, skóla, foreldra og ráðamenn til að gefa börnum orðið þennan dag, og alla aðra daga, þannig að börn fái tækifæri til að tjá skoðanir sínar og tala fyrir réttindum sínum og annarra barna heima hjá sér, í skólanum og úti í samfélaginu.
Hægt er að fylgjast með viðburðum og uppákomum hér á landi og um allan heim undir myllumerkjunum #börnfáorðið og #WorldChildrensDay
Mikill árangur í menntamálum vegna íslenskrar þróunarsamvinnu
Íslensk stjórnvöld hafa um langt árabil lagt kapp á að styðja við börn í alþjóðlegu þróunarstarfi, ekki aðeins í löngu og árangursríku samstarfi við UNICEF hér heima og á alþjóðavísu, heldur einnig með beinum stuðningi í samstarfslöndum Íslendinga. Eins og sjá má á grafísku myndinni njóta tæplega 57 þúsund börn í Malaví og Úganda stuðnings Íslendinga í menntamálum, í grunn- og framhaldsskólum, auk þess sem nýlega er hafinn í tilraunaskyni verkefnaþáttur í Malaví sem snýr að leikaskólastiginu. Athygli vekur að stúlkur eru í meirihluta í grunnskólunum sem njóta stuðnings frá Íslandi, bæði í Malaví og Úganda.

Auk stuðnings Íslendinga við menntun barna í þróunarsamvinnu hefur verið lögð gífurleg áhersla á lýðheilsu í samstarfsríkjum, einkum stuðning við mæður og ungbörn í Malaví. Úrbætur í vatns- og salernismálum sem er lykilþáttur í þróunarstarfi Íslendinga nýtist öllum samfélögunum, en ekki síst yngstu börnunum með veikasta ónæmiskerfið, sem eru í bráðustu hættu vegna vatnsborinna sjúkdóma. Rúmlega sex milljónir barna, langflest í þróunarríkjunum, létust á síðasta ári vegna sjúkdóma sem unnt hefði verið að lækna eða koma í veg fyrir.
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.