Ný framkvæmdastýra Sónarhátíðarinnar Stefán Þór Hjartarson skrifar 22. desember 2018 15:51 Sigga vinnur sem framkvæmdastýra Sónar og starfar á meðferðarheimili þess á milli. Fréttablaðið/sigtryggur Ari
Sigríður Ólafsdóttir, eða Sigga (Sigga litla, eins og sumir kalla hana), hefur verið að snúast í kringum tónlistarbransann og tónlistarhátíðir lengi vel. Hún byrjaði í miðasölunni hjá Retro Stefson á sínum tíma, fór þaðan yfir í Airwaves og svo eiginlega allar tónlistarhátíðir sem haldnar hafa verið hér á landi. Hún hefur starfað fyrir Sónarhátíðina síðustu sex árin og svo er komið að nú hefur hún verið ráðin framkvæmdastýra hátíðarinnar. „Þetta leggst mjög vel í mig. Ég var alveg í pínu stund að hugsa mig um, alls ekki langan tíma, en svo fannst mér alveg þess virði að kýla á þetta. Ég er búin að vera lengi að vinna í tónlistarbransanum og þó að ég hafi byrjað ung þá er þetta kannski skrefið til að taka og það er geggjað að taka það á þessari hátíð – þetta er stórt vörumerki og spennandi,“ segir Sigga nokkuð kát, en þegar blaðamaður nær í hana er hún á leiðinni í hina vinnuna sína, á Stuðlum, þar sem hún vinnur á milli þess sem hún stjórnar stærðarinnar tónlistarhátíðum. Það er greinilega nóg að gera. „Þetta er búin að vera upp áhaldshátíðin mín síðan ég byrjaði að vinna á henni fyrir sex árum, þegar hún var haldin í fyrsta skipti. „Ég vinn bara í mínum vinnum eins og ég hef alltaf gert. Auðvitað er þetta miklu stærra hlutverk og allt það og ég sit kannski í einhverjum mjög næs skrifborðsstól yfir hátíðina“ Hátíðin hefur auðvitað farið í gegnum miklar breytingar en þær eru jákvæðar að mínu mati.“ Sigga segist vera komin ágætlega inn í starfið enda búin að fylgjast með forverum sínum í starfi allt frá „Ég vinn mikið með Steinþóri og Ásgeiri og hef verið að fylgjast með og fara á fundi með þeim. Þó að maður þekki þetta að mörgu leyti þá er líka margt nýtt – hvernig svona hátíð er rekin og fleira. Ég veit alveg hvaða gildi ég vil hafa á minni vinnu og mér finnst þessi hátíð alltaf hafa starfað eftir þeim; vera heiðarlegur og koma vel fram við fólk og ég er ánægð með að geta haldið því áfram.“ Aðspurð hvort dagurinn hennar sé núna þannig að hún sitji í þægilegum stjórastól og gefi digurbarkalegar skipanir til hræddra undirmanna segir hún að svo sé ekki. „Ég vinn bara í mínum vinnum eins og ég hef alltaf gert. Auðvitað er þetta miklu stærra hlutverk og allt það og ég sit kannski í einhverjum mjög næs skrifborðsstól yfir hátíðina. En ég vinn á meðferðarheimili - ég vinn alla daga á Stuðlum en það er vaktavinna þannig að maður getur spilað þetta eftir eyranu og ég á líka góða yfirmenn þar sem gefa mér frelsi til að hoppa frá og taka frí ef þarf.“ Hún segir að törnin fari almennilega í gang hjá sér á Sónar í janúar. „Þá verð ég líklega að vinna þar á daginn og á Stuðlum á kvöldin. Eða þetta verður smá púsluspil en þannig hefur það alltaf verið hjá mér. Ég hef alltaf verið að vinna á nokkrum stöðum og aldrei brunnið upp í því sem ég geri – þetta er alltaf ógeðslega skemmtilegt. Ég hef aldrei pælt í að hætta neins staðar og langar eiginlega að gera allt.“ Sigga segir að skipulagning hátíðarinnar gangi gífurlega vel, en hún fer fram í apríl. Fleiri miðar hafa verið seldir á þessum tímapunkti heldur en á sama tíma í fyrra. Markmið Siggu er að reyna að fá fleiri Íslendinga á hátíðina og vonar hún að Íslendingarnir taki aðeins við sér í ár.
Birtist í Fréttablaðinu Ráðningar Tónlist Mest lesið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Bíó og sjónvarp Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Fleiri fréttir Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið