Næstu tíu ár lykilár í örlögum komandi kynslóða Heimsljós kynnir 18. mars 2019 09:30 Ungmennaráðið eftir fundinn með ríkisstjórninni. Forsætisráðuneytið „
Nauðsynlegt er þó að gleyma ekki að þið hafið valdið og vonandi viljann til breytinga því næstu tíu árin eru lykilár í að ráða örlögum komandi kynslóða. Við þekkjum öll frestunaráráttu í okkar daglega lífi og hvernig dagar, mánuðir, jafnvel ár geta liðið án nokkurs árangurs. Klukkan tifar, tíminn heldur áfram en spurningin er, hvenær mun seinasta sandkornið falla?,“ segir í inngangi að aðgerðaráætlun sem Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna afhenti ríkisstjórninni á föstudag. Ungmennaráðið átti þá fund með ríkisstjórninni í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Í aðgerðaráætluninni eru fimm verkefni sem unga fólkið telur mikilvæg við innleiðingu stjórnvalda á heimsmarkmiðunum. Þessi atriði eru nývæðing menntakerfisins, andleg líðan ungmenna, stöðvun frekari stjóriðju, samhæfing flokkunarkerfisins og endurheimt votlendis. „Ef ekkert verður gert þá verðum við ungmennin síðasta kynslóðin sem nýtur þeirra lífsgæða sem við höfum í dag,“ sagði Hulda Margrét Sveinsdóttir fulltrúi Norðurlands í ungamennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna eftir fundinn. Hún sagði jafnframt að jörðin væri komin að þolmörkum. Katrín Jakobsdóttir forsætisráherra sagði í frétt frá forsætisráðuneytinu að fundurinn hefði verið góður og gagnlegur. „Við fengum mikilvæg skilaboð í aðgerðaáætluninni sem þau hafa unnið mjög vandlega. Allar ákvarðanir sem stjórnvöld taka í dag munu hafa áhrif á komandi kynslóðir og þess vegna er þetta samtal svo mikilvægt,“ sagði forsætisráðherra. Meginmarkmið ungmennaráðsins er að vekja athygli á heimsmarkmiðunum og sjálfbærri þróun, bæði meðal ungmenna og innan samfélagsins í heild. Ungmennaráðið fundar sex sinnum á ári og þar á meðal árlega með ríkisstjórn. Þá veitir ráðið stjórnvöldum, í gegnum verkefnastjórn heimsmarkmiðanna, ráðgjöf við innleiðingu markmiðanna. Hægt er að fylgjast með störfum ungmennaráðsins á Facebook síðu þess og þá hefur ungmennaráðið einnig miðlað frá deginum í dag á Instagram-reikningi Félags Sameinuðu þjóðanna. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Innlent