Segir sólina skína á sviðinu þegar Jón Axel dansar Atli Ísleifsson skrifar 14. apríl 2019 10:21 Jón Axel Fransson á stóra sviðinu í Kaupmannahöfn. Konunglegi ballettinn/Henrik Stenberg „
Þegar hann dansar skín sólin á sviðinu,“ sagði Nikolaj Hübbe, listrænn stjórnandi Konunglega ballettsins í Danmörku, á sviðinu eftir frumsýningu á AfteRite og Etudes þar sem hann lýsti frammistöðu íslenska ballettdansarans Jóni Axel Franssyni. Hübbe tók Jón Axel sérstaklega fyrir og fór hann mjög fögrum orðum um hinn 28 ára íslenska dansara. „Stjörnudansari kvöldsins er með hæfileika, hugmyndaflug, skynbragð á tónlist, iðni og guðdómlegan stökkkraft. Hann er gott dæmi um klassískan dansara en hann hefur góð tök á nútímadansi. Þetta þýðir að nafn hans er á óskalista allra gestadanshönnuða. Þegar hans dansar, skín sólin á sviðinu. Og þegar hann ræðst í háskalegt stökk er það líkt og að fylgjast með Heklugosi,“ sagði Hübbe. Listræni stjórnandinn lauk svo máli sínu á að óska Jóni Axel til hamingju. „Með þessum orðum varð Jón Axel Fransson nýjasti sólódansari Konunglega ballettsins,“ að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Jón Axel stundaði nám við Ballettskóla Konunglega leikhússins í Danmörku. Jón Axel Fransson.Konunglegi ballettinn/Natascha Ryvald
Danmörk Dans Ballett Mest lesið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira