Foreldrafélag Hatara fékk að fljóta með pressunni í blaðamannahöllina Kolbeinn Tumi Daðason í Tel Aviv skrifar 14. maí 2019 17:55 Pabbarnir brugðu á leik með blaðamanni í rútunni og þóttust naga neglurnar af stressi. Vísir/Kolbeinn Tumi
Hatari er með þétt stuðningsnet í Tel Aviv en foreldrar þeirra eru flestir hverjir mættir utan til að standa við bakið á sínu fólki. Nú þegar 75 mínútur eru í að Hatari stígi á svið er hópurinn mættur í höllina vopnaður íslenska fánanum, bjartsýni og góða skapinu. Fjölmiðlum býðst að taka litlar rútur, svokallaðar skutlur, í keppnishöllina. Endastöðin er rétt við hótel íslenska hópsins og fengu foreldrarnir þau skilaboð að þau gætu farið með rútunni upp í keppnishöllina.Foreldrarfélagið er klætt í Hataraboli sem seljast víst eins og heitar lummur á klakanum þessa stundina.Vísir/Kolbeinn TumiTil þess að fá far með rútunni þarf hins vegar að framvísa passa, þ.e pressupassa eða að vera hluti af keppnisteymi hverrar þjóðar. Foreldrarnir höfðu engan slíkan passa og stefndi í leit að leigubíl til að ferma flotann upp í keppnishöll. Bekkurinn var þétt skipaður í rútunni en foreldrarnir, með bros á vör, náðu að fara yfir málin með rútubílstjóranum sem horfði í gegnum fingur sér og hleypti foreldrafélaginu um borð. Að neðan má sjá myndir úr rútunni og ljóst að Hatari á gott bakland sem mun styðja sitt fólk í blíðu og stríðu.Púlsinn var góður á dyggustu stuðningsmönnum Matthíasar Tryggva söngvara.Vísir/Kolbeinn Tumi
Eurovision Mest lesið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Fleiri fréttir Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Sjá meira