„Við höfðum oft áður rætt um sameiginlegan draum um að opna blómabúð en það hafði aldrei náð lengra en spjall yfir drykk. Þegar við sáum að blómaskreytir sem við vorum báðar að fylgja á Instagram var að auglýsa nokkur laus sæti á námskeiði hjá sér í Kaupmannahöfn ákváðum við að slá til og skelltum okkur upp í flugvél. Þá varð ekki aftur snúið,“ segir Sigrún.

„Okkur langaði til að gera eitthvað öðruvísi en þessar hefðbundnu samsetningar. Á námskeiðinu í Kaupmannahöfn var ekki unnið eftir ströngum reglum og við sáum að það væri hægt að gera svo margt annað með blóm en að vera með hefðbundna blómabúð,“ segir Elín.
Sigrún segir stóran part af áhuga þeirra á blómum að finna útrás fyrir sköpun.
„Allir litirnir og áferðirnar. Margir fallegustu blómvendirnir okkar hafa orðið til þegar við erum ekki að reyna að gera eitthvað sérstakt heldur bara treystum á okkur sjálfar og innsæið,“ bætir hún við.

„Þau eru mikið í tísku akkúrat núna. Þegar við vorum að byrja að prófa okkur áfram sjálfar þurrkuðum við þau sjálf og spreiuðum svo í öllum regnbogans litum. En núna er nóg að gera svo við erum farnar að kaupa blóm að utan líka. Við notum líka fersk blóm en eins og er höfum við bara verið með þau þegar um stærri verkefni er að ræða,“ segir Sigrún.
Viðtökurnar hafa farið fram úr þeirra björtustu vonum.
„Fólk virðist taka vel í að brjóta aðeins upp þetta hefðbundna form. Við höfum fengið verkefni sem við hefðum ekki einu sinni látið okkur dreyma um fyrir örfáum mánuðum,“ segir Elín
En hvaða verkefnum eruð þið að vinna að núna?
„Eins og er erum við erum að selja þurrkuðu vendina okkar í versluninni Norr11 á Hverfisgötu 18A og svo eru alltaf einhver ný og spennandi verkefni á borðinu. Við erum líka sjálfar með endalausar hugmyndir sem okkur langar til að framkvæma,“ svarar Sigrún.
Þær segja öll verkefnin sem þær hafi tekið sér fyrir hendur verið skemmtileg.
„Við vinnum ólíkt fyrir hvern og einn viðskiptavin. Við tökum að okkur skreytingar fyrir veislur, brúðkaup og aðra viðburði og líka stærri innsetningar, erum algjörlega til í að skoða allt,“ segir Sigrún.

„Þetta eru bara tvö heimili í austur- og vesturbæ Reykjavíkur lögð undir starfsemina. Við erum að leita okkur að hentugra rými til að geta unnið og tekið á móti viðskiptavinum. En maður kvartar ekki yfir því að vera með íbúð undirlagða blómum,“ svarar Sigrún hlæjandi.
En hvaðan kemur nafnið Pastel?
„Okkur finnst Pastel tengjast sköpun og litagleði,“ svarar Elín glaðlega að lokum.
