Rýma byggð vegna ótta við berghlaup í Noregi Kjartan Kjartansson skrifar 1. júlí 2019 10:35 Þyrla á flugi við Mannen árið 2014. Þá var einnig skriðuhætta í fjallinu. Vísir/EPA
Yfirvöld í Mæri og Raumsdal á vesturströnd Noregs hafa rýmt byggð nærri fjallinu Mannen vegna hraðrar gliðnunar í hluta fjallsins sem nefnist Veslemannen. Mikið hefur rignt á svæðinu síðasta sólahringinn og telja jarðfræðingar fjallið afar óstöðugt. Rauðu viðbúnaðarstigi hefur verið lýst yfir vegna hættunnar á berghlaupi, að því er segir í frétt norsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2. Fimm skriður eru sagðar hafa fallið úr fjallinu í nótt. Ákvörðun um rýmingu var tekin seint í gærkvöldi. Fyrst var varað við óstöðugleika í fjallinu um miðjan júní og var þá gulu viðbúnaðarstigi lýst yfir. Síðan þá hefur hreyfingin í fjallinu færst í aukana. Efri hluti þess færist nú um sextíu millímetra á sólahring og neðri hlutinn um ellefu millímetra. Rúmmál Veslemannen í Raumsdal er 120-180 þúsund rúmmetrar, um 1% af heildarrúmmáli Mannen. Undanfarið ár hefur Veslemannen gliðnað um tvo metra.
Noregur Mest lesið Dó fjórum árum eftir að hún hvarf Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Kom verðmætum fyrir í röngum bíl sem hvarf á brott Innlent Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Erlent Stærsti skjálftinn við Öskju frá ársbyrjun 2022 Innlent Baráttan hafin á TikTok: Traktor í Skeifunni, kaldar kveðjur og endurkoma Innlent Missti stjórn á bílnum þegar klæðingin umvafði dekkin Innlent Trump vann öll sveifluríkin Erlent Hætta sem sáttasemjarar í deilu Ísraela og Hamas Fréttir Allt of margir með hugann annars staðar í umferðinni Innlent Fleiri fréttir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Þrír handteknir vegna dauða Liam Payne Vilja banna 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla Fundu ellefu lík í yfirgefnum pallbíll Ávarp Bidens: „Þú getur ekki elskað nágranna þinn bara þegar þið eruð sammála“ Vill taka vantraustið fyrir strax Engin furða að verkafólk hafi snúið baki við Demókrataflokknum Ríkissjórn Scholz er sprungin Óskaði Trump til hamingju og ítrekaði friðsamleg valdaskipti Ríkisstjórn Scholz á barmi þess að springa Harris búin að hringja í Trump og undirbýr ávarp Óttast verulegt bakslag á mörgum vígstöðvum Baráttan um Bandaríkin: Donald Trump verður forseti, og hvað svo? Þjóðarleiðtogar kasta kveðju á Trump Trump lýsir yfir sigri: Guð hafi bjargað honum svo hann gæti bjargað Ameríku Andstæðingar þungunarrofs unnu í Flórída Donald Trump forseti á nýjan leik Mikill fögnuður hjá Trump-liðum Sjá meira