Tekjur Örnu jukust um fjórðung Kristinn Ingi Jónsson skrifar 17. júlí 2019 07:00 Tekjur Örnu hafa vaxið hratt frá því að framleiðsla hófst 2013. Þær voru 1.052 milljónir í fyrra og jukust um fjórðung á milli ára. Fréttablaðið/Ernir
Mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík hagnaðist um liðlega sjö milljónir króna á síðasta ári, samkvæmt nýlegum ársreikningi félagsins, borið saman við fimmtán milljóna króna hagnað árið 2017. Rekstrartekjur Örnu, sem sérhæfir sig í framleiðslu á laktósafríum mjólkurvörum, námu rúmum 1.052 milljónum króna á síðasta ári og jukust um 23 prósent frá fyrra ári þegar þær voru alls 858 milljónir króna en þær hafa vaxið ört frá því að framleiðsla hófst á haustdögum 2013.. EBITDA mjólkurvinnslunnar – afkoma fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta – var jákvæð um 51 milljón króna í fyrra en til samanburðar var hún jákvæð um 53 milljónir króna árið 2017. Arna átti eignir upp á tæplega 409 milljónir króna í lok síðasta árs en á sama tíma var eigið fé félagsins 116 milljónir króna og eiginfjárhlutfallið því um 28 prósent. Ársverk mjólkurvinnslunnar voru 21 talsins í fyrra, borið saman við 18 árið áður, og námu laun og annar starfsmannakostnaður hennar samanlagt 169 milljónum króna. Dvorzak Ísland, sem er í eigu fjárfestisins Jóns von Tetzchner, er stærsti hluthafi Örnu með ríflega helmingshlut en stofnandinn og framkvæmdastjórinn Hálfdán Óskarsson er sá næststærsti með fimmtán prósenta hlut.
Birtist í Fréttablaðinu Landbúnaður Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira