Sport

Bein útsending: Annar keppnisdagur á heimsleikunum í CrossFit

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Keppendur Íslands á heimsleikunum í CrossFit 2019.
Keppendur Íslands á heimsleikunum í CrossFit 2019. Samsett mynd
Fyrsti keppnisdagur er að baki og 182 keppendum var „fórnað“ á heimsleikunum í CrossFit sem fara fram í Madison í Bandaríkjunum. Nú eru aðeins 50 karlar og 50 konur eftir í keppninni og fram undan er dagur tvö. Vísir fylgist vel með og sýnir beint frá heimsleikunum.

Þrettándu heimsleikarnir í CrossFit fara fram í Alliant Energy Center í Madison í Wisconsin-fylki í Bandaríkjunum en keppnin hófst í gær 1. ágúst og stendur til sunnudagsins 4. ágúst þegar við fáum að vita hver verða þau hraustustu í CrossFit heiminum árið 2019.

Vísir fylgist vel með heimsleikunum í Madison og hér verður bæði hægt að horfa á beina útsendingu frá leikunum sem og að sjá beina textalýsingu frá blaðamanni Vísis þar sem koma fram allar helstu upplýsingar um það sem er í gangi hverju sinni.

 
Ísland á sex keppendur í karla- og kvennaflokki að þessu sinni. Björgvin Karl Guðmundsson keppir í karlaflokki á heimsleikunum í ár eins og undanfarin ár og Ísland á síðan fimm keppendur í kvennaflokki eða þær Anníe Mist Þórisdóttir, Katrínu Tönju Davíðsdóttur, Ragnheiði Söru Sigmundsdóttur, Þuríði Erlu Helgadóttur og Oddrúnu Eik Gylfadóttur.

Allir íslensku keppendurnir fóru örugglega í gegnum niðurskurðinn í gær en fyrst var fækkað niður í 75 eftir fyrstu grein (úr 148 og 134) og svo niður í 50 eftir grein tvö. Anníe Mist Þórisdóttir er fremst af íslensku keppendunum en hún er í 2. sæti á eftir Karissu Pearce frá Bandaríkjunum. Katrín Tanja Davíðsdóttir er í 12. sæti eftir tvær greinar og Þuríður Erla Helgadóttir er síðan í sextánda sæti. Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir byrjaði ekki vel en er í 26.sæti og Oddrún Eik Gylfadóttir er í 32.sætinu. Björgvin Karl Guðmundsson er í 12. sæti hjá körlunum.

Hér fyrir ofan má sjá beina útsendingu frá keppni annars dagsins á heimsleikunum en fyrir neðan er síðan bein textalýsing frá blaðamanni Vísis. Sjónvarpsútsendingin hefst klukkan 14.30 en textalýsingin fer af stað klukkan 14.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×