Jóhannes Karl: Þegar þú ert kominn í úrslitin er ekkert í boði nema sigur Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 16. ágúst 2019 16:00 Jóhannes Karl Sigursteinsson vísir
Jóhannes Karl Sigursteinsson getur fært KR titil á sínu fyrsta tímabili með félagið þegar KR mætir Selfossi í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna á Laugardalsvelli á morgun, laugardag. Jóhannes Karl tók við KR um miðjan júlí eftir að Bojana Besic sagði upp störfum. „Fyrir alla leikmenn og þá sem koma að þessu þá er stefnan sett á titilinn. Þú ert kominn í bikarúrslitaleik og þá er ekkert í boði nema sigur,“ sagði Jóhannes Karl á blaðamannafundi KSÍ fyrir leikinn. „Menn eru farnir að finna fyrir spennunni en þetta verður fyrst og fremst gaman bara og verður stór stund.“ Hvernig leik á Jóhannes von á að sjá á morgun? „Ég held þetta verði hörku leikur. Þetta eru tvö mjög sterk lið og bæði vilja titilinn.“ „Selfyssingar hafa farið í bikarúrslitin tvisvar með stuttu millibili án þess að taka titil svo það er krafa þar að vinna líka.“ „Heilt yfir vonum við bara að þetta verði opinn og skemmtilegur fótboltaleikur og KR vinni.“ „Við erum búnir að leggja upp okkar leikplan en við erum líka fullkomlega meðvituð um það að það eru einhverjir að vinna vinnuna Selfoss megin líka. Það er erfitt að plana þetta þannig að allt gangi upp svo við verðum bara að vera tilbúin á öllum sviðum að takast á við það sem kemur upp,“ sagði Jóhannes Karl. Bikarúrslitaleikurinn er á Laugardalsvelli á morgun, laugardaginn 17. ágúst, og hefst hann klukkan 17:00. Hann verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst útsending hálftíma fyrir leik. Fyrir þá sem ætla að mæta á völlinn vill KSÍ hvetja fólk til þess að kaupa miða fyrir fram á tix.is.
Mjólkurbikarinn Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira