Rjúpnaveiðin byrjar á föstudaginn Karl Lúðvíksson skrifar 28. október 2019 09:54 Rjúpnaveiðin byrjar á föstudaginn
Rjúpnaskyttur eru þessa dagana í óðaönn að undirbúa sig fyrir rjúpnaveiðitímabilið sem hefst næsta föstudag. Veiðidögum hefur eins og áður hefur komið fram verið fjölgað úr 15 í 22 og er nú veitt alla daga í nóvember nema miðvikudaga og fimmtudaga. Þetta á eftir að hafa mjög jákvæð áhrif á þann hluta veiðanna að ekki verður jafn fjölmennt á vinsælum svæðum eins og oft áður síðustu haust. Langstærsti hluti rjúpnaskytta gengur til fjalla til að ná sér í jólamatinn og hætta þegar komið er nóg í jólaveisluna. Þeim fækkar þess vegna oft mjög hratt þegar vel veiðist og síðustu dagana eru yfirleitt mun færri á fjöllum. Við fjölgun veiðidaga dreifist eins og áður segir álagið og skyttur taka síður áhættu að fara út í hvaða veðri sem er. Nú hefur snjóað ágætlega fyrir norðan og austan og það er að heyra á þeim vönustu að þangað sé straumurinn fyrstu helgina enda munar ansi miklu að geta lagt langa leið undir fót t.d. fyrir borgarbúa á norðausturlandið og veitt í fimm daga en ekki þrjá. Veiðimenn eru minntir á að gæta hófsemi við veiðar, vera vel búnir og láta vita af ferðum sínu.
Skotveiði Mest lesið Landaði 6 löxum úr 6 ám á sama deginum Veiði Eitthvað laust af góðum veiðileyfum Veiði Þrír mánuðir til stefnu Veiði Margar skytturnar í góðri veiði í morgun Veiði Skemmtileg vefsíða um tölfræði í laxveiði Veiði Lúxusveiði í verðlaun í myndagetraun Veiði Eitt gott ráð fyrir síðsumars laxveiði Veiði "Afspyrnu slakt" Veiði Síðustu fjögur holl fóru öll yfir 100 laxa Veiði Mikil ásókn í Elliðaárnar Veiði