Þetta kemur fram í umsögn Hafnarsamlagsins vegna skipulagsvinnu sem nú er í gangi á Akureyri. Líkt og ítarlega hefur verið fjallað um á Vísi eru uppi hugmyndir um að byggja allt að fimm sex til ellefu hæða fjölbýlishús á afmörkuðum reit í grennd við Oddeyrarbryggju, þar sem skemmtiferðaskip leggja gjarnan að
Til þess að það gangi eftir þarf að breyta aðalskipulagi en núgildandi skipulag heimilar byggingu þriggja til fjögurra hæða húsa á reitnum. Reiturinn er hluti af svæði sem skilgreint hefur verið sem þróunarreitur, líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd. Svæðið er þó í dag skipulagt sem athafnasvæði í núgildandi aðalskipulagi, merkt AT1 og AT2.
Geti kallað á kostnaðarsaman flutning á starfsemi
Í umsögn stjórnar Hafnarsamlagsins, sem lesa má hér, koma fram áhyggjur af því að verið sé að stefna að því að skipuleggja svæðið sem skilgreint er sem athafnasvæði, sem íbúðasvæði. Slíkt muni þrengja að starfsemi hafnarinnar, ekki síst ef heimila á aukið byggingamagn á svæðinu líkt og skipulagshugmyndir á reitnum afmarkaða gera ráð fyrir.
Þannig hafi verið ráðist í kostnaðarsama uppbyggingu á Oddeyrarbryggju og Tangabryggju, þar með talið lengingar í báða enda og uppbygging á vakthúsi og þjónustuhúsi. Líftími þessa mannvirkja sé 80-100 ár. Þessar fjárfestingar séu að stórum hluta til að mæta sívaxandi vinsældum Akureyrar sem viðkomustað fyrir skemmtiferðaskip, sem kalli á aukna þjónustu.
Gera þurfi því ráð fyrir að umsvif hafnarinnar aukist frekar en hitt.
„Horft til framtíðar er nauðsynlegt að gera ráð fyrir að vaxandi umsvif hafnarinnar kalli á aukið rými fyrir hafnsækin þjónustufyrirtæki svo þau geti vaxið og þróast. Mikilvægt er fyrir höfnina að framtíðarstefna aðalskipulags Akureyrar sé skýr,“ segir í umsögninni.
Þannig þurfi taka það með í reikninginn í skipulagsvinnunni hvaða kostnað það feli í sér að minnka hafnarstarfsemi á svæðinu eða flytja hana, að hluta til eða alla.

Greina þurfi áhrif hafnarstarfsemi á íbúðarbyggð
Bendir stjórnin einnig á að huga þurfi að mörgu í skipulagsvinnunni, ekki síst hvernig samspil hafnarstarfsemi og íbúðasvæðis verði háttað. Það sé til dæmis eðli hafnarstarfsemi að þar sé svigrúm til athafna á öllum tímum sólarhringsins með „tilheyrandi umstangi og þungaflutningum.“„Mikilvægt er að gerð sé greining á umhverfisáhrifum af hafnarstarfsemi gagnvart fyrirhugaðri íbúðarbyggð með tilliti til ljós-, svifryks-, hljóð- og útblástursmengunar. Til að forðast núning milli íbúðarsvæða og hafnarsvæða, er nauðsynlegt að taka tillit til þessa við breytingu á aðalskipulagi hvað varðar athafnasvæði AT1 og AT2,“ segir í umsögninni.
Að neðan má sjá kynningarmyndband fyrir uppbygginguna á Oddeyrinni.