Í Hjálpinni, tímariti Rauða krossins, segir að náin samvinna Rauða krossins við veðurfræðistofnanir og stjórnvöld í Malaví sé mikilvæg undirstaða neyðarvarna og gefi Rauða krossinum tækifæri til að virkja viðbragðsteymi sín í tæka tíð. Bætt samskiptatækni og sífellt nákvæmari loftslags- og veðurspár geri Rauða krossinum kleift að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum til viðbótar við þær neyðaraðgerðir sem þurfi að framkvæma í kjölfar hamfara. „Það segir sig sjálft að mun betra er að veita fjármagni og hjálpargögnum á hamfarasvæði fyrirfram og vera tilbúin að veita fólki stuðning þegar hamfarirnar skella á, heldur en að koma því á svæðin eftir að neyðin kemur upp,“ segir í Hjálpinni.
„Fellibylurinn Idai gerði boð á undan sér með miklu rigningarveðri og sterkum vindhviðum 5. mars, tíu dögum áður en hann reið yfir Malaví. Þá var strax ákveðið að veita fjármagni úr neyðarsjóðum til viðbragðsteyma Rauða krossins á líklegum flóðasvæðum. Vel þjálfaðir sjálfboðaliðar fengu boð um að fara í viðbragðsstöðu. Vopnuð mælistikum, farsímum, trommum og flautum fylgdust þau grannt með aðstæðum. Þegar vatnshæð áa náði upp að hættumörkum gáfu þau viðvörunarmerki og sáu til þess að þorpsbúar náðu að taka mikilvægustu eigur sínar og flýja á rýmingarsvæði.
Rauði krossinn var búinn að koma upp neyðarskýlum, mat, salernum og hreinlætisaðstöðu á rýmingarsvæðum áður en fólkið rýmdi þorpin. Þá voru leitar- og björgunarsveitir félagsins virkjaðar til að hjálpa fólki, sem eftir varð, að komast í öryggi.

Eins og á Íslandi, felst styrkleiki Rauða krossins í Malaví í starfi deilda á vettvangi, þar sem fólk úr sjálfum þorpunum á verkefnasvæðunum eru sjálfboðaliðar sem koma beint að framkvæmd verkefna í sínu nærumhverfi,“ segir í greininni.
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.