Níu félög vilja ekki hætta á að spila eftir 30. júní Sindri Sverrisson skrifar 15. apríl 2020 23:00 Enn er óljóst hvort og þá hvenær Englandsmeistarar ársins 2020 verða krýndir. VÍSIR/EPA
Að minnsta kosti níu félög úr ensku úrvalsdeildinni í fótbolta vilja að tekin verði skýr ákvörðun um það að keppnistímabilinu verði lokið 30. júní. Það er Daily Mirror sem greinir frá þessu og segir að félögin muni leggja fram tillögu sína á fundi ensku úrvalsdeildarinnar á föstudaginn. The Guardian tekur í sama streng. Flest lið í deildinni eiga níu leiki eftir og fjögur þeirra eiga tíu leiki eftir. Því er erfitt að sjá að hægt verði að spila alla leiki fyrir 30. júní nú þegar enn er útgöngubann í Englandi vegna kórónuveirufaraldursins. Félögin hafa áhyggjur vegna þess að 30. júní renna út samningar hjá leikmönnum sem eru á lokaári samnings. Stórir samningar við styrktaraðila eru einnig miðaðir við þessa dagsetningu. Félögin eru sögð gera sér grein fyrir að ekki komi til greina að ógilda mótið og byrja upp á nýtt í haust, en vilja að fundin verði sanngjörn leið til að ljúka því, krýna Liverpool meistara og ákveða hvaða lið fari í Evrópukeppni og hvaða lið falli. Það sé betra en að taka sénsinn á þeirri gríðarlegu óvissu og ringulreið sem það geti haft í för með sér að fara með mótið fram í júlí eða lengra fram á sumar. FIFA hefur verið að skoða lausnir varðandi samningamál þeirra leikmanna sem ættu að losna undan samningi 30. júní en ensku félögin óttast að það myndi ekki standast lög að halda leikmönnum fram yfir þann dag.
Enski boltinn Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Sjá meira