Sala hafin á Mercedes-Benz EQV Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 3. júní 2020 07:00 Mercedes-Benz EQV er kominn í sölu.
Nýr Mercedes-Benz EQV rafbíll er kominn í sölu hjá Bílaumboðinu Öskju en hann verður frumsýndur síðar í sumar. Nú þegar hefur verið mikil eftirspurn eftir EQV sem er stór lúxusbíll og rúmar allt að 8 farþega. EQV er rafmögnuð útgáfa af V-Class sem hefur notið mikilla vinsælda. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Öskju, umboði Mercedes-Benz á Íslandi er EQV er hreinn rafbíll með engan útblástur. Hann er með 90 kWh litíumíonrafhlöðu undir gólfinu sem skilar bílnum 204 hestöflum og drægnin er um 366 kílómetrar samkvæmt af WLTP staðli. Hámarkstog bílsins er 362 Nm. Hægt verður að hlaða bílinn upp í allt að 80% rafhlöðu á innan við 45 mínútum. EQV er tæknivæddur í innanrýminu sem er vel búið þægindum og lúxus. Bíllinn er búinn hinu margrómaða MBUX margmiðlunarkerfi og er með stóru, stafrænu mælaborði. Þá er hann einnig búinn allra nýjustu aksturs- og öryggiskerfum frá Mercedes-Benz. Hægt er að breyta sætauppstillingum að vild en bíllinn er bæði ætlaður til einkanota og fyrirtækjareksturs. EQV er annar bíllinn í EQ fólksbílalínu Mercedes-Benz en sportjeppinn EQC var frumsýndur á síðasta ári og hefur fengið mjög góðar viðtökur. eVito Tourer bætist svo við EQ línuna í nóvember á þessu ári. eVito Tourer er einnig 100% rafbíll og hefur sæti fyrir 7-8 farþega.
Vistvænir bílar Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent