Stjarnan bætti við sig leikmanni úr Harvard Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2020 16:00 Angela Caloia í leik með nítján ára landsliði Ítala á æfingamóti á La Manga í fyrra. Getty/Quality Sport Images
Angela Pia Caloia mun spila með Stjörnunni í síðari hluta Pepsi Max deildar kvenna í fótbolta en Garðabæjarfélagið hefur fengið staðfest félagsskipti í gegn hjá KSÍ. Angela er fædd árið 2001 og er því á nítjánda aldursári. Hún á ítalska foreldra en var í menntaskóla í Washington og fékk í framhaldinu skólastyrk hjá Harvard háskólanum. Caloia á að baki eitt tímabil með Harvard háskólanum þar sem hún stóð sig mjög vel og var með 6 mörk og 11 stoðsendingar í 16 leikjum. Angela náði meðal annars stoðsendingaþrennu í leik á móti UConn og var með 34 skot á mark í þessum sextán leikjum sínum. Angela var einu sinni valin leikmaður vikunnar í Ivy-deildinni og var tvisvar sinnum nýliði vikunnar í Ivy-deildinni. Hún var á endanum valin í annað úrvalslið 2019 tímabilsins. Aðeins einn leikmaður hjá kvennaliði Harvard hefur náð að gefa fleiri stoðsendingar á einu tímabili. Angela Pia Caloia hefur líka reynslu af evrópska fótboltanum því hún hefur spilað með yngri landsliðum Ítalíu. Angela er komin með leikheimild og getur því spilað sinn fyrsta leik á sunnudaginn þegar Stjarnan fær Þór/KA í heimsókn í Garðabæinn. Stjarnan er í áttunda sætinu í Pepsi Max-deild kvenna en liðin í kring eru öll jöfn að stigum og því er mikil spenna fyrir næstu umferð.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Hversu heitt er sætið hans Lárusar Orra? Sport Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik Uppgjör: Keflavík – ÍA | Slátrun á Suðurnesjunum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2 | Ótrúleg endurkoma og nýliðaþrenna Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Beið spenntur eftir því að Amin færi út Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjáðu mörkin þegar Þór vann meistarana og Fram sótti sigur á Hlíðarenda „Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ „Satt best að segja er mér drullusama“ Uppgjörið: Þór/KA - ÍBV 2-1 | Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum Uppgjörið: KR - Stjarnan 5-0 | Muldir mélinu smærra „Flengdir á beran bossann og þá þarf að skammast sín“ „Mér fannst þetta ekki víti“ „Ég þakkaði bara Guði“ „Erfitt að spila svona leiki á milli Evrópuleikja“ Uppgjörið: ÍBV - KA 2-2 | Fjörugt í Eyjum og sjö spjöld á loft Uppgjörið: Víkingur - Fram 1-2 | Upp úr fallsæti með þriðja sigrinum í röð Finnur til með leikmönnum: „Síðustu mánuðir verið erfiðir“ Sjá meira