Þrjár lægðir á leiðinni til landsins Eiður Þór Árnason skrifar 5. janúar 2020 07:58 Í dag má reikna með vind og rigningu eða slyddu víða á landinu. Vísir/Vilhelm
Á Grænlandssundi er lægð á leið norðaustur sem færir okkur strekkingssuðvestanátt í dag með slydduéljum, en þurrt verður norðaustantil á landinu. Í kvöld nálgast svo næsta lægð og snýr vindur sér til austurs með slyddu eða rigningu. Seinni lægðin gengur yfir landið á morgun og mun vindur blása úr ýmsum áttum, norðlæg átt vestantil á landinu í nótt en suðlægari um landið vestanvert, er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofunni. Í dag má rekna með suðvestanátt, víða 10 til 15 metrum á sekúndu en heldur hvassari vindur norðvestantil á landinu. Slydduél eða él en bjart með köflum um landið norðaustanvert. Lægir og styttir upp í kvöld. Reikna má með umhleypingum næstu daga. Í nótt gengur svo í austan 8 til 15 metra á sekúndu með rigningu eða slyddu, fyrst syðst. Norðan 8 til 15 í fyrramálið á vesturhelmingi landsins, annars hægari breytileg átt og styttir upp norðaustanlands. Hiti 1 til 5 stig en kringum frostmark á morgun. Síðdegis á morgun er lægðin komin norður fyrir landið og vindur orðinn vestlægari og gengur á með éljum, en þurrt og slær í storm á austanverðu landinu. Seint annað kvöld nálgast svo þriðja lægðin og fer vindur aftur að snúa sér.
Veður Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent „Örstutt í þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt í þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Sjá meira