Innlent

51 milljón ríkari með allar tölur réttar

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Tölur kvöldsins voru 3, 4, 22, 23 og 26.
Tölur kvöldsins voru 3, 4, 22, 23 og 26. Vísir/Getty

Heppinn Lottó-leikmaður er 51 milljón króna ríkari eftir að dregið var út í kvöld. Sá var með allar tölur réttar. Tölur kvöldsins voru 3, 4, 22, 23 og 26.

Vinningsmiðinn var keyptur á netinu. Sex aðrir hlutu annan vinning og hver þeirra vann 116 þúsund hver. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.

Þá var einn með jókertölur kvöldsins réttar, í réttri röð, og hlýtur sá tvær milljónir í sinn hlut. Eins voru sjö með fjórar tölur í réttri röð í jókernum og hljóta þeir 100 þúsund krónur hver.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×