Sportpakkinn: Valskonur deildarmeistarar þegar fjórar umferðir eru eftir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2020 15:00 Kiana Johnson var frábær þegar Valskonur lögðu grunninn að sigri sínum í ær. Vísir/Daníel
Valskonur tryggðu sér í gær deildarmeistaratitilinn annað árið í röð með sigri á liðinu í öðru sæti. KR-konur unnu Val í bikarnum í dögunum en réðu ekkert við þær í gær. Arnar Björnsson skoðaði leikinn og það sem leikmenn og þjálfarar sögðu eftir hann. Valur varð í gærkvöldi deildarmeistari Domino´s deildar kvenna í körfubolta eftir sjö stiga sigur á KR, 84-77. Þegar fjórar umferðir eru eftir er Valur með 10 stiga forystu. KR byrjaði miklu betur í gærkvöldi, komst í 24-15 en Valur skoraði þrjú síðustu stigin í 1. leikhluta. Valur byrjaði 2. leikhlutann af krafti og komst í 32-24, þá höfðu Valskonur skorað 17 stig í röð. Í hálfleik var munurinn 8 stig. Kiana Johnson var frábær í þriðja leikhluta og Valur náði mest 23ja stiga forystu. Hún var stigahæst, skoraði 29 stig. Helena Sverrisdóttir skoraði 23 stig, tók 10 fráköst, þær tvær voru atkvæðamestar hjá deildarmeisturunum. Danielle Rodriquez skoraði 18 stig, gaf 11 stoðsendingar og tók 8 fráköst hjá KR. Sanja Orozovic skoraði einnig 18 stig en þær léku báðar í 40 mínútur. Valur vann alla fjóra leiki liðanna í deildinni og er með 44 stig eða jafnmörg og liðið fékk á síðustu leiktíð. Valur hefur aðeins tapað tveimur leikjum í deildinni í vetur en tapaði 6 á síðustu leiktíð. KR er með 34 stig, 6 stigum meira en Skallagrímur og Keflavík. Skallagrímur mætir Snæfelli í kvöld og Keflavík sækir Breiðablik heim í Kópavoginn. Hér fyrir neðan má sjá frétt Arnars Björnssonar og viðtöl við Benedikt Guðmundsson, Darra Frey Atlason og Guðbjörgu Sverrisdóttur. Klippa: Sportpakkinn: Valskonur deildarmeistarar þegar fjórar umferðir eru eftir
Dominos-deild kvenna Sportpakkinn Mest lesið Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Fótbolti Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira