Nýr Mercedes-Benz GLA á leiðinni Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 31. ágúst 2020 07:00 Nýr Mercedes-Benz GLA 2020
Nýr Mercedes-Benz GLA er kominn í sölu hjá Bílaumboðinu Öskju en fyrstu bílarnir verða afhentir í desember nk. Mikil eftirvænting hefur verið eftir þessum bíl þar sem GLA verður nú í boði í EQ Power tengiltvinnútfærslu með drægi á rafmagninu allt að 60 km. Búist er við að sú útfærsla af bílnum verði sérlega vinsæl. Nýr GLA kemur með mjög breyttu útliti miðað við núverandi bíl. Útlit bílsins er kraftmikið og sportlegt. GLA kom fyrst á markað árið 2013 og hefur verið afar vinsæll hér á landi sem og víða um heim, samkvæmt fréttatilkynningu frá Öskju. Þótt GLA sé nettur er hann rúmgóður og býður upp á gott aðgengi í alla staði. Fótarýmið aftur í hefur aukist og færa má seinni sætaröðina fram og aftur. Innrarýmið er meira m.a. höfuðrými fyrir ökumann og farþega og auk þess olnboga- og fótarými fyrir aftursætisfarþega. Innrarýmið í nýjum GLA er mjög sportlegt og vel hannað og svipar til stærri lúxusbíla Mercedes-Benz með stórum og breiðum aðgerðarskjá og upplýstum lofttúðum. GLA er búinn hinu háþróaða MBUX afþreyingar- og upplýsingakerfi og raddstýringarbúnaðinum Hey Mercedes. Innrarýmið er vandað í alla staði og boðið er upp á öll helstu þægindi sem Mercedes-Benz er þekkt fyrir. Í boði eru loftkæld sæti auk hita í sætum. Auk þess hefur öryggisbúnaður verið uppfærður verulega með sjálfvirkni sem tryggir öryggi bílstjórans og farþega. Bíllinn er m.a. í boði með akstursaðstoðarpakka, hemlunaraðstoð, Off-road tæknipakka ofl. GLA er minnsti sportjeppinn í breiðri línu Mercedes-Benz en þar eru GLC, GLE, GLS og hinn stóri og stæðilegi G-Class auk hins nýja rafmagns sportjeppa EQC. Verðið á nýjum GLA er frá 6.590.000 kr.
Vistvænir bílar Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent