Kaupir fjórðungshlut í Sagafilm Atli Ísleifsson skrifar 2. september 2020 11:41 Eigendur Sagafilm eru KPR ehf. og HilGun ehf. og nú Beta Nordic Studios. Sagafilm
Beta Nordic Studios, dótturfyrirtæki Beta Film í Þýskalandi hefur keypt 25 prósenta hlut í Sagafilm. Í tilkynningu frá Sagafilm segir að Beta Film starfi jafnt við framleiðslu, dreifingu og fjármögnun hágæða kvikmynda- og sjónvarpsverkefna, verið stofnað árið 1959 af Leo Kirch og sé með höfuðstöðvar í München í Þýskalandi. Þá eru starfræktar skrifstofur víða um heim. „Með Beta Nordic Studios í hluthafahópi Sagafilm eykst til muna aðgengi að alþjóðadreifingu fyrir kvikmynda- og sjónvarpsefni Sagafilm, auk þess sem þetta er staðfesting á stöðu og árangri Sagafilm á alþjóðamörkuðum undanfarin misseri. Tilgangur þessara kaupa er að efla vöxt Sagafilm enn frekar á þeim mörkuðum. Kaupin eru að fullu frágengin en kaupverðið er trúnaðarmál. Fulltrúar Beta Nordic Studios taka sæti í stjórn félagsins og ekki er gert ráð fyrir að neinar breytingar verði á starfsemi Sagafilm, sem er elsta kvikmyndaframleiðslufyrirtæki landsins, stofnað árið 1978. Framkvæmdastjóri Beta Nordic Studios er Martin Håkansson. Hann mun setjast í stjórn Sagafilm, ásamt Justus Riesenkampff, yfirmanni Norðurlandamála hjá Beta Film. Sagafilm er þriðja fyrirtækið á Norðurlöndunum sem Beta Nordic Studios kaupir hlut í, en áður hefur félagið keypt hluti í Fisher King í Finnlandi og í Dramacorp í Svíþjóð. Öll fyrirtækin hafa það að markmiði að framleiða hágæða kvikmyndaefni fyrir sjónvarp og kvikmyndadreifingu,“ segir í tilkynningunni. Ragnar Agnarsson verður áfram stjórnarformaður Sagafilm og er haft eftir honum að velta félagsins hafi rúmlega tvöfaldast á innan við þremur árum og séu enn meira spennandi tímar framundan. Eigendur Sagafilm eru KPR ehf. og HilGun ehf. og nú Beta Nordic Studios. Félagið velti 2,3 milljörðum á árinu 2019.
Kvikmyndagerð á Íslandi Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Sjá meira