Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir fyrir um gengi liðanna í Olís-deild kvenna en keppni í deildinni hefst með tveimur leikjum föstudaginn 11. september.
Fyrst skoðum við liðin sem við teljum að muni reka lestina í Olís-deildinni í vetur og berjist um að halda sér uppi.
Að okkar mati stefnir allt í erfiðan vetur hjá Hafnarfjarðarliðunum, FH og Haukum. FH-ingar eru nýliðar í Olís-deildinni á meðan Haukar hafa orðið fyrir mikilli blóðtöku og eru með veikara lið en á síðasta tímabili.

FH í 8. sæti: Brött brekka hjá nýliðunum
Eftir fjögurra ára fjarveru snýr FH aftur í Olís-deildina. FH-ingar voru í 2. sæti Grill 66-deildarinnar þegar tímabilið var blásið af vegna kórónuveirufaraldursins en var úthlutað sæti í Olís-deildinni.
Ljóst er að tímabilið sem framundan er verður krefjandi fyrir FH. En liðið ætlar að gefa allt í þetta og hefur m.a. sótt sænskan leikstjórnanda og tvo leikmenn frá Stjörnunni í sumar.
FH verður hins vegar án síns markahæsta leikmanns á síðasta tímabili, hornamannsins Ragnheiðar Tómasdóttur sem er farin til Slóvakíu í læknanám.
Þjálfari FH er Jakob Lárusson en hann er á sínu öðru tímabili með liðið. Í það vantar sárlega örvhenta leikmenn. Þá er reynslan ekki mikil og hætt við að stoðirnar séu ekki nógu styrkar. Gaman verður að fylgjast með Emilíu Ósk Steinarsdóttur sem er afar lofandi leikmaður.
Hversu langt síðan að FH ...
- ... varð Íslandsmeistari: 38 ár (1982)
- ... varð deildarmeistari: Aldrei
- ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 20 ár (2000)
- ... varð bikarmeistari: 39 ár (1981)
- ... komst í bikarúrslit: 11 ár (2009)
- ... komst í úrslitakeppni: 6 ár (2014)
- ... komst í undanúrslit: 16 ár (2004)
- ... komst í lokaúrslit: 21 ár (1999)
- ... féll úr deildinni: 4 ár (2016)
- ... kom upp í deildina: 0 ár (2020)
Gengi FH í deildarkeppninni undanfarin níu tímabil
- 2019-20 B-deild (2. sæti)
- 2018-19 B-deild (6. sæti)
- 2017-18 B-deild (4. sæti)
- 2016-17 B-deild (3. sæti)
- 2015-16 14. sæti í deildinni
- 2014-15 10. sæti í deildinni
- 2013-14 6. sæti í deildinni
- 2012-13 6. sæti í deildinni
- 2011-12 9. sæti í deildinni
Gengi FH í úrslitakeppninni undanfarin níu tímabil
- 2019-20 Úrslitakeppnin fór ekki fram
- 2018-19 B-deild
- 2017-18 B-deild
- 2016-17 B-deild
- 2015-16 Ekki í úrslitakeppni
- 2014-15 Ekki í úrslitakeppni
- 2013-14 Átta liða úrslit
- 2012-13 Átta liða úrslit
- 2011-12 Ekki í úrslitakeppni
HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili
FH-liðið spilaði í Grill 66 deild kvenna og ekki til tölur.
Félagaskiptamarkaðurinn
Komnar:
- Zandra Jarvin frá Sparvagen (Svíþjóð)
- Emilie Vagnes Jacobsen frá Ålesund (Noregi)
- Hildur Guðjónsdóttir frá Stjörnunni
- Írena Björk Ómarsdóttir frá Stjörnunni
- Emma Havin Sardardóttir frá Gróttu
Farnar:
- Dröfn Haraldsdóttir
- Embla Jónsdóttir til Þýskalands
- Diljá Sigurðardóttir
- Ragnheiður Tómasdóttir í nám erlendis
Líklegt byrjunarlið
- Markvörður: Hrafnhildur Anna Þorsteinsdóttir
- Vinstra horn: Aþena Arna Ágústsdóttir
- Vinstri skytta: Britney Cots
- Miðja: Zandra Jarvin
- Hægri skytta: Emilía Ósk Steinarsdóttir
- Hægra horn: Andrea Valdimarsdóttir
- Lína: Fanney Þóra Þórsdóttir

Verður að eiga gott tímabil
Franska skyttan Britney Cots er að hefja sitt þriðja tímabil með FH. Hún er algjör lykilmaður í liðinu og gengi þess stendur og fellur að stórum hluta með frammistöðu hennar. Cots er mikilvæg á báðum endum vallarins. Á síðasta tímabili skoraði hún 65 mörk í nítján leikjum í Grill 66-deildinni.

Haukar í 7. sæti: Búið að plokka skrautfjaðrirnar af Haukum
Eftir að hafa verið á bestu liða landsins í nokkur ár tóku Haukar smá dýfu á síðasta tímabili. Þegar keppni var hætt var liðið í 5. sæti Olís-deildarinnar, fjórum stigum frá sæti í úrslitakeppninni.
Haukar misstu sterka leikmenn fyrir síðasta tímabil og það sama gerðist fyrir þetta tímabil. Haukar eru búnir að missa aðalmarkvörðinn sinn, leikstjórnandann og besta varnarmanninn. Í staðinn fengu Haukar tvo leikmenn frá Grill 66-deildarliði Fjölnis og færeyskan landsliðsmarkvörð.
Haukar skiptu líka um þjálfara eftir síðasta tímabil. Árni Stefán Guðjónsson hætti og hóað var í gömlu kempuna Gunnar Gunnarsson. Hans bíður krefjandi verkefni í vetur og ljóst að brekkan gæti orðið brött fyrir Hauka.
Byrjunarlið Hauka er nokkuð frambærilegt og ef meiðsladraugurinn tekur ekki hús á Ásvöllum gæti liðið komist í úrslitakeppnina. En þá þarf nánast allt að ganga upp.
Hversu langt síðan að Haukaliðið ... .
- .. varð Íslandsmeistari: 15 ár (2005)
- ... varð deildarmeistari: 4 ár (2016)
- ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 3 ár (2017)
- ... varð bikarmeistari: 13 ár (2007)
- ... komst í bikarúrslit: 2 ár (2018)
- ... komst í úrslitakeppni: 1 ár (2019)
- ... komst í undanúrslit: 1 ár (2019)
- ... komst í lokaúrslit: 15 ár (2005)
- ... féll úr deildinni: 30 ár (1990)
- ... kom upp í deildina: 28 ár (1992)
Gengi Hauka í deildarkeppninni undanfarin níu tímabil
- 2019-20 5. sæti í deildinni
- 2018-19 4. sæti í deildinni
- 2017-18 4. sæti í deildinni
- 2016-17 3. sæti í deildinni
- 2015-16 Deildarmeistari
- 2014-15 5. sæti í deildinni
- 2013-14 7. sæti í deildinni
- 2012-13 8. sæti í deildinni
- 2011-12 8. sæti í deildinni
Gengi Hauka í úrslitakeppninni undanfarin níu tímabil
- 2019-20 Úrslitakeppnin fór ekki fram
- 2018-19 Undanúrslit
- 2017-18 Undanúrslit
- 2016-17 Undanúrslit
- 2015-16 Undanúrslit
- 2014-15 Átta liða úrslit
- 2013-14 Átta liða úrslit
- 2012-13 Átta liða úrslit
- 2011-12 Ekki í úrslitakeppni
HBStatz tölurnar frá síðasta tímabili
Sóknarleikur Hauka 2019/20 í tölum HBStatz
- Mörk skoruð í leik - 7. sæti (22,1)
- Skotnýting - 6. sæti (49,2%)
- Vítanýting - 8. sæti (72,1%)
- Hraðaupphlaupsmörk - 6. sæti (41)
- Stoðsendingar í leik - 7. sæti (6,5)
- Tapaðir boltar í leik - 5. sæti (12,9)
Vörn og markvarsla Hauka 2019/20 í tölum HBStatz
- Mörk fengin á sig í leik - 5. sæti (24,9)
- Hlutfallsmarkvarsla - 4. sæti (32,3%)
- Varin víti - 2. sæti (14)
- Stolnir boltar - 4. sæti (78)
- Varin skot í vörn - 5. sæti (35)
- Lögleg stopp í leik - 5. sæti (22,7)
Félagaskiptamarkaðurinn
Komnar:
- Annika Fríðheim Petersen frá Færeyjum
- Guðrún Jenný Sigurðardóttir frá Fjölni
- Karen Birna Aradóttir frá Fjölni
Farnar:
- Alexandra Líf Arnarsdóttir til HK
- Saga Sif Gísladóttir til Vals
- Guðrún Erla Bjarnadóttir til Fram
Líklegt byrjunarlið
- Markvörður: Annika Fríðheim Petersen
- Vinstra horn: Birta Lind Jóhannsdóttir
- Vinstri skytta: Sara Odden
- Miðja: Karen Helga Díönudóttir
- Hægri skytta: Berta Rut Harðardóttir
- Hægra horn: Hekla Rún Ámundadóttir
- Lína: Rakel Sigurðardóttir

Verður að eiga gott tímabil
Berta Rut Harðardóttir var markahæsti leikmaður Hauka á síðasta tímabili. Hún er gríðarlega efnileg skytta með góða skothönd en mætti bæta fleiri stoðsendingum við leik sinn. Haukar treysta á framlag frá Bertu og hún þarf að eiga A+ vetur, sérstaklega í ljósi þess hversu mikið liðið hefur misst.