Innlent

Tilkynnti um eld í íbúð við Framnesveg

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Einn dælubíll var sendur á vettvang.
Einn dælubíll var sendur á vettvang. Vísir/vilhelm

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst nú á ellefta tímanum tilkynning um eld í íbúð við Framnesveg. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði tilkynnti íbúi um eldinn eftir að hafa slökkt hann sjálfur með slökkvitæki.

Lið á einum dælubíl hefur verið sent á staðinn til að kanna aðstæður og reykræsta ef þörf þykir á. Slökkvilið var enn á leið á staðinn nú skömmu fyrir klukkan ellefu. Ekki er frekari upplýsingar að fá um málið að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×