Bílar

Toyota var með flestar nýskráningar í október

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Toyota RAV4 var mest nýskráða Toyota undirtegundin í október.
Toyota RAV4 var mest nýskráða Toyota undirtegundin í október.

Samtals voru 124 Toyota bifreiðar nýskráðar í október. Þar af voru flestar bifreiðarnar af Rav4 gerð, eða 45. Nýst flestar nýskráningar voru hjá Suzuki, eða 98. Þar var SX4 hlutskarpasta undirtegundin.

Kia var í þriðja sæti með 79 nýskráningar, Hyundai með 70 í fjórða og Volkswagen í fimmta með 67.

Samtals voru nýskráð 962 ný ökutæki í október. Þar af voru 740 fólksbifreiðar, 92 sendibifreiðar og eftirvagnar í flokki II 44.

Tesla sem var með 313 nýskráningar í september var með 13 nýskráningar í október. Árið hefur verið afar sveiflukennt hjá Tesla og ráðast sveiflurnar af sendingum sem umboðið fær.

Rafbílar hafa þann kost að menga ekki og auðvelt er að tengja þá beint í rafmagn.mynd/getty

Orkugjafar

Flestir nýskráðra fólksbíla voru hreinir bensínbílar eða 213, rafbílar voru næstflestir, 151 og bensín tengil-tvinn bílar voru 143. Hreinir dísil bílar voru 120 og bensín-tvinn bílar voru 97.

Bílar sem ganga fyrir vistvænni kostum, rafmagni að einhverju leyti eða öllu auk vetnis voru 407 í október.

Hinir hefðbundnu jarðefnaeldsneytis orkugjafar voru hins vegar samtals 333 (hreinir bensín og dísil bílar).

Þróun nýskráninga

Nýskráningum fækkar á milli mánaða. Í september voru 1443 ökutæki nýskráð í september en í október voru þau 962. Þeim fækkar því um þriðjung, 33,3%.






×